Jörð - 01.09.1942, Blaðsíða 4
ÞJÓÐLÍF
ANDVARP
frá óflokksbundnu sjónarmiði
út af stjórnmála- og launadeilum
I. Óviti —
M GERVALLA JÖRÐINA geysa óskaplegustu og örlaga-
þrungnustu átölc þjóðanna, sem sögur fara af. Hver
iýðfrjáls þjóð leggur fram alla krafta sína vegna frels-
is síns og framtiðar og öryggis almennra mannréttinda. í
öllum lýðfrjálsum löndum hafa flokkar og stéttir fellt niður
ágreining sinn bg tekið höndum saman. Fórnir eru færðar
af einstaklingum, flokkum og stéttum, er eiga sér ekkert.
sambærilegt úr sögu seinni alda.
Eitt land sker sig alveg út úr í þessum aíeflisátökum j)jóð-
anna. Það hefur tvöfaldað þjóðarauð sinn á tveimur árum.
Þjóðin ])ar hefur ekki beðið lýðræðisstórveldin um að úthella
blóði sínu, en peningagróði hennar er unninn úr blóði þeirra,
tárum og sveita. Og sigur þeirra á að geta orðið hennar sigur.
Til þess þarf hún j)ó að sýna af sér lágmark siðferðilegs
þroska og velsæmis og taka á móti niáðargjöfum friðar og
velgengni, þegar öðrum er úthlutað algerri (total) stvrjöld,
með þakklæti, hátt og i liljóði, með hófsemd, stillingu og
tillitssemi innbyrðis og út á við.
En hvernig hagar þjóð þessi sér? Land hennar logar af
í'Iokkadráttum og ofsalegri sérdrægni, sem kemur í vegfyrir*)
svo að segja alla stillilega athugun, hófsemd, biðlund, til-
litssemi og ábyrgðartilfiningu í samkomulagsumleitunum,
er fara skyldu fram í vitundinni um, að svo bezt verður eitt-
hvað meira en pappírssneplar að skipta á milli sín, þegar
öll kurl koma til grafar, að samið sé tafarlaust vopnahlé
milli flokka og stétta og hafin allsherjar samvinna innan
*) Erindi þetta var skrifað laust fyrir 20. Ágúst s.l. og boðið rikis-
útvarpinu, en þvi var hafnað.
194
JÖRD