Jörð - 01.09.1942, Blaðsíða 37
Það var eingöngu Mengan að þakka, að óvinirnir höfðu ekki
tekið þau höndum fyrir löngu. Hún var fundvis eins og mús
á felustaði og smugur, sem þau sluppu í gegnum. Allsstað-
ar voru einhverjir, sem gerðu henni aðvart, betlarar, hænd-
ur eða prestar, ef óvinahermenn voru í nánd, og þá fór hún
með þau allskonar krókaleiðir, sem hún ein vissi um. Þau
höfðu aldrei þurft að mæta óvinunum auglitis til auglitis.
„En stundum rekst ég á þá,“ sagði hún við þau.
„Hvað gerirðu þá?“ spurði Martin. Hann liorfði rannsak-
andi á hana, meðan hún svaraði. Þetta dularfulla andlit var
að byrja að Ijúkast upp fyrir honum og hann sá þar gerast
undur og breytingar, sem öðrum voru huldar. Þessi stúlka
var bæði viðkvæm og tilfinningarík.
„Ég læzt alltaf vera fábjáni,“ sagði liún. „Littu á.“
Hún skæídi einhvernveginn neðri kjálkann og ranglivolfdi
í sér augunum, svo að hún leit út eins og fáviti.
„Þá sleppa þeir mér alltaf.“
„Ég furða mig ekkert á því,“ sagði Siu-li hlæjandi. En
Martin varð hljóður. Hann gat ekki almennilega fellt sig við,
að slíkar stúlkur væru til. Þarna sat hún í rykinu við þjóð-
véginn, þar sem þau höfðu staðnæmzt, til þess að hvíla sig.
Hár hennar var grátt af ryki og á andlitinu lá þyklct rvklag.
„Frið er hún ekki — en liugrökk, það má hún eiga,“ hugs-
aði hann.
Þessa nótt komust þau út úr hertekna svæðinu og inn í
sitt eigið land. Ilann fann muninn, jáfnvel þólt ennþá væri
skuggsýnt; honum þótti sem kæmi hann í nýtt andrúmsloft.
A knánni, þar sem þau gistu, voru samræður og hlátur fólks-
ms greinilcga óþvingaðri og innilegri og mikið var hælst
yfir því, hvernig hinir og þessir liöfðu leikið sér að því að
iara fram og aftur yfir landamæri óvinanna. En mest var
breytingin á Mengan. Þegar þau komu lil gestgjafahússins,
Sekk hún inn í eilt herbergið, stundarkorn. Litlu seinna kom
bún út aftur, til þess að boi'ða kvöldverðinn. Martin hafði þá
þvegið sér og haft fataskipti, en nú blasli við honum óvænt
sjón. Ét úr herbergi þeirra Mengan og Siu-li kom grannvax-
lnn, ungur hermaður. Niðurlag næst.
JÖRÐ 007