Jörð - 01.09.1942, Blaðsíða 68
Hverjum áttu að þakka
unaö æsku þinnar af sögunum af Sigrúnu á Sunnuhvoli, Árna,
Kátum pilti og Brúökaupslaginu ? Norðmanninum Björnstjerne
Björnson. Hverjum áttu að þakka hina djúpu nautn af lestri Pét-
urs Gauts og Brands? Norðmanninum Henrik Ibsen. Hverjum
áttu aö þakka hinn óviöjafnanlega skáldskap: Davíð skyggna?
Norðmanninum Jónasi Lie. Hverjum áttu að þakka Viktoríu og
Pan — einnig óviöjafnanlegan skáldskap? Norðmanninum Knut
Hamsun. Hverjum áttu að þakka hina miklu sögu Kristínu Lav-
ransdóttur? Norðmanninum Sigrid Undset. Alexander Kielland,
Arne Garborg, Johan Bojer o. íl. o. fl. eru nöfn Norðmanna, sem
þú skuldar ótaldar yndisstundir, upplýsingu um lífið, dug og dáö
vegna þess, sem þú hefur lesið eftir þá. Áttu ekkert teljandi að
þakka tónskáldunum Grieg, Kjerulf, Nordraak, Johan Svendsen,
Sinding, Alsnæs? Hverrar þjóðar er dugmesti mannvinur, er
sögur fara af, Frithjov Nansen?'Þú veizt, aö hann var Norö-
maður. Allra þjóða menn standa í þakkarskuld viö slíka menn,
sem öðrum fremur hafa haldiö uppi virðingu MANNSINS, en af
ónorskum mönnum engin þjóð þó fremur en nánustu f.rændurnir,
þjóð, sem meir en nokkur önnur á allt undir virðingunni fyrir mann-
inum sem slíkum, vér íslendingar. Er þér, kæri lesandi, ljóst,
að nú hefur norska þjóöin í heild sett sig í spor þessara velgerða-
manna mannkynsins og færir sjálfa'sig að fórn, til þess að halda
uppi sjálfsvirðingunni í heiminum? Er þér ljóst, að þú getur átt
þátt í því að mýkja lemstrunarsárin, er hún hlýtur af fórnar-
baráttu sinni? Er þér ljóst, að hún og þú eruð hold af (sama holdi,
blóð af sama blóði?
Ef þér, kæri lesandi/ er allt þetta ljóst, þá lætur þú það ekki
standa á þér, að Noregssöfnunin komist upp í hálfa milljón króna.
Kaupstaöir! Viljiö þiö ekki fylgja fordæmi Reykjavíkur í þessu
drengskaparmáli ? Ritstj.
samur, en allt umhverfðist í höndum hans og fékk hann ávallt
óþökk fyrir hjálpfýsi sína. — JÖRÐ er nú nærri því komin í
spor þessarar sígildu söguhetju, en sem betur fer þó ekki alveg.
Því Krölle ætlaði alltaf að gera öðrum greiða, en JÖRÐ, í þyí
XXXIV JÖKÐ