Jörð - 01.09.1942, Page 36

Jörð - 01.09.1942, Page 36
ararnir í þorpunum gáfu lienni brauð, á testofunum fékk hún kollu með heitu tei og hvar sem hún kom, báru litlu farand- matsalarnir henni núðlur og jurtaolíu í skál og hristu höf- uðin, þegar hiin bauð þeim borgun. „Við vinnum öll fvrir ættjörðina,“ sögðu þeir stundum hátíðlega. Mengan varð algjörlega að sjá heim farborða, ekki sízt, er þau komu lengra vestur á bóginn, þar sem hún var eins og heima hjá sér, en þau voru öllu ókunnug. Siu-li klæddist nú karlmannsfötum, til þess að lélta sér gönguna, og Marlin var kominn í bændabúning, en Mengan var alllaf í tötraleg- um strákafötum, þegar hún ferðaðist um herteknu héruðin. Þau gengu til liádegis, horðuðu þá og fengu sér blund við veginn, en héldu síðan áfram göngunni framundir miðnætti. Þannig leið liver dagurinn af öðrum, unz þetta var komið upp í vana og fortíð varð eins og óljós draumur. „Skyldi föður okkar falla það illa, að við fórum?“ spurði Siu-li dag nokkurn, þegar þau sátu og hvildu sig. „Ilann veit, hvers vegna við fórum,“ svaraði Martin. Mengan horfði dreymandi í áttina til hæðanna, sem blán- aði fyrir i fjarska. „Það eru sex ár, síðan ég sá foreldra mína,“ sagði hún allt í einu. „Langar þig ekki aftur til þeirra?“ spurði Siu-li. „Stundum,“ svaraði Mengan. „En þá minnist ég þess, að liverfi ég heim, nær gamli tíminn aftur valdi á mér og ég verð gefin manni, sem ég hef aldrei augum litið og evði æv- inni inni í læstum húsagarði. Og þá stekk ég á fætur og held áfram ferðinni.“ Hún hafði aldrei sagt svona mikið fyrr. Það brá fvrii' leiftri í augum tiennar, er hún talaði, en það var allt og sumt. Martin lmgsaði með sér, að í brjósti þessarar ungu veru bærð- ist tilfinningar, sem hann hafði ekki órað fyrir. „Varstu ung heitin manni?“ spurði hann. Hún kinkaði kolli þegjandi og hann gat ekki fengið sig til þess að spyrja frekar. Allan þenna tíma höfðu þau farið yfir hertekin landsvæðu 226 JÖRP

x

Jörð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jörð
https://timarit.is/publication/467

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.