Jörð - 01.09.1942, Page 63
þessu sambandi, þótt sú mynd sé ef til vill eitthvað smáfríð-
ari en mvnd villimannsins? Er ekki livortlveggja skurðgoð?
Heimspekigrýlan.
ÉR segið, að liugtakið: „hinn ópersónulegi guð“ sé „al-
gerlega heimspekilegt“ (leturirreyting mín). Þetta er
að vísu rétt. En mér er ekki vel Ijóst, hvernig á að komast
með ölln af án lieimspekinnar, ef um skilning á að vera að
ræða í þessum efnum. Ef „lieimspeki" er eitthvað annað en
nafnið tómt, táknar hún að mínum dómi fyrst og fremst
skilning á lífinu og tilverunni, en þegar um slíkt er að ræða,
getur svo farið, að þoka verði mörgu til hliðar um hríð, þar
á meðal jafnvel líkingunum. Menn verða að gera það upp við
sig, hvað það er, sem þeir vilja í þessum efnum. Vilja þeir
skilning á lífinu, sannleikann og sannleikann einan? Sé svo,
mega þeir áreiðanlega ekki fyrirlíta heimspekina. Annað
mál er það, að ekki er sama, hver heimspekin er. Annars
verð ég að segja ]>að, að mér finnst það dálítið furðulegt,
hve sum heimspekileg liugtök, eins og t. d. það, sem Indverj-
ar kalla „Maya“ (hlekkingu), virðast valda miklum hneyksl-
unum. Ég hef í sumum ritum minum (í „Ilmi skóga“ og
■víðar) reynt að gera ofurlitla grein fyrir þeirri kenningu
Vedantistanna indverslcu, að allt hið skynræna sé í vissum
^kilningi blekking. í kosningaharáltu þessa sumars notaði
stjórnmálaóviti einn þessar tilraunir mínar til árása á mig,
°g var að vísu ekki við öðru að húast úr þeirri átt, enda litl-
um skilningi þar fyrir að fara. En nú virðist mér að þér, sem
þó eruð góðviljaður maður og gætinn, fallið fyrir svipaðri
freistingu, þ. e. að segja að Imoða úr lílt skildu efni pappírs-
kúlu til þess að kasta í skoðanaandstæðing. En ég get sagt
yður það, að jafnvel efnishyggjuvísindi Vesturlanda eru
Uijög farin að nálgast þessa kenningu Indverja. Þau eru að
minnsta kosti hælt að hneykslast á henni. Sannleikurinn er
uú líka sá, að J)að þarf ósköp litla heimspeki og ósköp litla
vísindalega þekkingu, til þess að geta áttað sig að einhverju
leyti á þessu máli. Það J>arf ekki annað en ofurlitla skynsam-
lega íhugun. Hvar er snjórinn, sem féll í fyrra? Hvar er
Jörð 253