Syrpa - 01.09.1911, Síða 9

Syrpa - 01.09.1911, Síða 9
CLAUDE GUEUX 7 ekki orð á því viö nokkurn mann. Hann var ekki svoleiöis geröur. Þaö var einn dag, að Clauda reif í sig sultar skamt sinn og gekk aft ur til bekkjar síns til að dunda við verk og hafa af sér hungrið meöþví móti. Hinir fangarnir sátu enn að mat og skröfuðu saman. Þá tók unglingspiltur sig út úr hóp þeirra. Hann var gugginn í framan og heilsutæpur í sjón. Hann gekk til Claude og nam staðar við bekk hans. Hann hélt á hníf í hendinni og skamt- inum sínum óskertum. Hann stóð kyrr hjá Claude og var eins og hann langaði til að segja eitthvað, en kæmi sér ekki að því. Varirnar á Claude kipruðust. Honum var anii að drengnum og matnum hans. ,,Hvað viltu”, sagði liann stutt- aralega. ,,Eg vildi, þú sýndir mér kunn- inga bragð”. ,,Hverter það”, spurði Claude. ,,Að hjálpa mér að klára þetta; eg get ekki lokið því”. Vonskan i augum Claude hvarf fyrir tárum, senr sigu fram í augu hans. Hann tók hnífinn, skifti matnum til helminga, tók annan til SÍn og fór að éta. ,,Hafðu nú þökk fyrir”, sagði sveinninn, þegar þeir voru búnir með matinn. ,,Við skulum skifta honum milli okkar upp frá þessu”. ,,Hvað heiturðu?” spurði Claude. ,,Eg heiti Albin”. „Fyrir hvað ertu settur inn?” ,,Eg stal”. ,,Það gerði eg líka”, sagði Claude. Þeir mötuðust saman upp frá þessu, og tókst með þeim hin kær- asta vinátta. Saman að sjá voru þeir fremur eins og feðgar en bræð- ur. Því Claude hafði sex um þrít- ugt, en leit út eins og maður utn fimmtugt, svo var svipur hans sett- legur og alvarlegur, en Alhin var tvítugur að aldri, og þó yngri í sjón að sjá, vart meira en 17 ára. Því bernsku sakleysið var ekki horfiðúr augnaviðmóti hans, þó þjófur væri. Þeir voru að verki saman í sömu sveit, sváfu í sama klefanum, gengu saman í garðinutn og átu báðir af sama hleif. Hvor var hinum alt í öllu. Verkstjóranum hefir verið lýst að fratnan. Hann var óvinsæll af föng- unum og varð oft að leita hjálpar hjá Claude til að fá þá til að gegna sér. Ciaude stilti oftar en einu sinni til friðar, þegar rosti var í föngun- um og hamlaði þeim frá að gefa full- trúa fangelsisstjósnarinnaralvarlega ráðningu. Fáein orð fráhans munni sefuðu betur rostann í þeim, en gert hefðu 10 lögregluþjónar. Hann hafði margsinnis gert verkstjóra þess háttar greiða og fyrir þá sök var verkstjóra líka af alhuga illa til hans. Hann öfundaði þjófinn. Hann hataði hann í hjarta sínu, þó hann léti ekki á bera, hataði hann eins og óðalborinn fursti hatar kjörrétt til óðala eða með þeirri afbrýði, sem ríkir milli verzlegs og andlegs vald. Fjandskapur af slíkum rótum runninn.er bitrastur allra. Claude þótti vænt um Albin; en hann gaf engan gaum að hugarfari verkstjóra til sín. Það var einn dag, að fangarnir að venju gengu tveir og tveir saman úr svefnsalnum til vinnustofanna, þá kallaði fangavörður á Albin, sem gekk við hliðina á Claude, og sagði honum, að verkstjóri vildi finna hann. ,,Hvað getur liann viljað?” sagði Claude. ,,Eg veit það ekki” svaraði Albin. Fangavörður fór með liann, og svo leið morguninn að hann kom ekki aftur. Claude hélt að þeir mundu finnast í garðinum um mat- málstímann, en liann kom þangað ekki. Og á sömu leið fór um kvöld- ið, þegar fangarnir voru látnir fara til svefns. Það leyndi sér ekki, að Claude féll þetta mjög illa, þvíhann hafði aldrei innt fangavörð að neinn áður en nú gerði hann það. ,,Er Albin veikur”, spurði hann. „Nei”. ,,Hví kemur hann þá ekki aftur?” „Verkstjóri hefir flutt hann”, anz- aði hinn fálega.

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.