Syrpa - 01.09.1911, Page 16

Syrpa - 01.09.1911, Page 16
Námur Salómons Auðugustu námur í heimi. í tvö þúsund ár hafa menn verið að leita að þeim. Líkur til nú sem stendur, aö leitin sé á enda og námurnar fundnar lengst inn í Afríku. Hér segir af þeirri löngu leit, sagan bœði skáldlega fögur og hrikaleg. I. KAFLI. Forn námagöng. tvö þúsund ár hefir mönnum verið það hulin ráðgáta hvar Ófír og námur Salómons hafi verið. Eru líkindi til að sú gáta verði nokk- urn tíma ráðin? Merkilegar fregnir hafa nýlega borist frá óbygðum Rhodesíu. Síð- ast liðinn ágústmánuð fundust forn námagöng í skógunum norður af Victoriu, sem báru þess merki, að þrælar hins volduga konungs ísra- elsmanna, sem flutti, frá einhverjum óþektum sfað, ógrynni gulls, hefðu unnið í. í námum þessum, sem virtisthafa verið unnið í fyrir þúsundum ára, fundust silfurpeningar frá ríkisár- um hans, gull deiglur úr steini, sem málmleyfar enn fundust á, hnappar og armbönd úr gulli. Armbönd þessi og gullstáss var af svo mikilli list gert að frumbyggjar Afríku gátu ekki hafa smíðað það. Það virðist að námamenn þessir frá löngu liðn- um öldum hafi yfirgefið staðinn í miklum flýti, því verkfæri þeirra ligfgja. á víð og dreif, líkast því að óvænt upphlanp nærliggjandi svert- ingjaflokka hafi neytt þá til að hætta starfi sínu. Þetta var mjög óvæntur og merki- legur fundur, inn í miðju hins ,,myrka meginlands“, þar sem eng- inn veit til að hvítur maður hafi stig- ið fæti sínum fyr en á öndverðri nítjándu öld. Það sem gjörir fund þennan enn merkilegri er, að um þessar mundir virðast fræðimenn og landkannendur sammála um það að námar Salomons hafi verið í , suðaustur hluta Afríku. Ennfremur er verið að rannsaka stórmerkileg- an bæ, sem Zimbabwe heitir og liggur fáar mílurfrá Vietoria. Rann- sóknir þær virðast daglega leiða í ljós nýjar sannanir fyrir því að í þeim bæ hafi Salómon haft ijárhirzl- ur þær, sem hann geymdi í fjirsjóðu sína, er hann fekk frá landinu Ófír og getið er um í ritningunni. Það sýnist vissulega mjög líklegt að innan skams finnist landið Ófír, sem landfræðingar síðari tíma þrátt fyrir ítarlegar rannsóknir hafa ekki getað sýnt á landabréfum sínum. Er mögulegt, að þeir auðugustu námar sem sögur fara af, hinir heimsfrægu, málmauðgu hellar, þar sem gull það, er prýddi veggi musterisins í Jerúsalem, var tekið, finnist í óbygðum Rhodesíu? Eru nokkur líkindi til að undradalurinn í Ófír, þar sem sólargeislarnir dansa um þúsundir glampandi gullmola, undradalurinn sem kostað hefir svo marga æfir.týramenn lífið, eigi, þrátt fyrir efagirni nútíðarmanna, eftir að

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.