Syrpa - 01.09.1911, Page 43

Syrpa - 01.09.1911, Page 43
41 DÆTUR ÚTILEGUMANNINS. leita hans, því þó hann væri bæöi stór og sterkur, var hann jafnan hnglítill, en sérstaklega haföi hann vondan bifur á útilegumönnum, drauguni og sjóskrímslum. Þaö voru hans nrestu óvinir. Látum hann nú dvelja þarna um tíma og hugsa um forlög sín. Nú er að segja frá Einari, að hann gekk suöur um hrauniö, en fór þó ekki hart, því hann vildi takaeftiröllu sem bezt, er hægt væri aö sjá þar í hrauninu. Hann hélt nú þannig á- fram og varö einskis var. En þeg- ar leið af miðjum degi, fór veður að þyngja í lofti og síðast skall á kol- niöa þoka. Datt þá Einari í hug að líkt væri nú þetta og í sögunum, hér væri nú komin þoka. En ekki gaf hann sig aö heldur, enda var það nú þýðingarlaust. Hann hélt nú áfram lengi lengi, og vissi ekkert hvert hann stefndi. Samthélthann áfram, enda var nú ekki um annaö að gera. — Þegar líöa tók að kvöldi, fann hann að halla tók undan fæti, og að hann var aö ganga niður háar brekkur, líkt og niður í dalverpi. Þegar hann hafði gengið svona góða stund, veit hann ekki fyrri til en hann sér framundan sér fjárhús; voru þau þrjú satnan, öll stór og búmannleg, engu tninni en þau stærstu, er hann hafði vanist í sveit sinni. Stóö hann viö og leit inn í húsin og sá að þau voru tóm, en samt leit út fyrir aö fé mundi þar hýst á hverri nóttu, og gat hann sér til, að smala- maður mundi vitjaþangað hráölega. Hahn réði því af að bíða þarna við húsin og sjá hverju framfæti. Þaö leiö ekki heldur á löngu, þar til hann heyrði hóað skamt frá hús- unum og rétt í því rann stór fjár- hópur heitn að þeim og þar á eftir labbaði stór og sterklegur náungi. Hann var í blárri kápunæstum ökla siöri og bar mikin broddstaf á öxl sér. Svartur og stór loðhundur tylgdi honum og lötruðu þeir báöirí hægðum sínum eftir fénu og virtist Einari þessi maöur veita sér litla eftirtekt, þar sem hann stóð til ann- arar hliðar viöhúsin. Hugsaði hann þá með sjálfum sér: Hér mun nú vera kominn Oddur Gunnlaugsson, tengdabróðir minn tilvonandi. Hvernig sk)ddi liann þá talca mér? En á meðan hann var að hugsa um þetta, lét útilegumaður inn fé sitt, byrgöi húsin síðan vandlega og fór að öllu sem rólegast, rétt eins og hann skeytti komumanni ekki að neinu. Einar stóð kyr á meðan þessu fór fram og beið nú boðanna. Þaö leiö heldur ekki á löngu, þar til útilegumaöur sneri frá húsunum og stefndi beint þangað sem Einar var; varð þar ekkert um kveöjur frekar venju hjá þessháttar piltum. Útilegumaður kastaði þegar af sér kápunni og réðist á Einar. Tóku þeir nú nokkurskonar glimutökum hver á öðrum, og sviptust fram og aftur þar utn völlinn. Fann Einar þaö undireins, að ekki liafði hann afl á móti þessurn mikla jötni; en stirður og ófimur virtist honum hann vera. Gekk nú leikurinn lengi nokk- uð og lét Einar hann sækja, en geröi lítið annað en verja sig. Fór þessu nú fratrt um liríð, þar til Einat fann að útilegumaður mundi farinn að mæðast. Sótti hann þá glímuna fastara og fastara, þar til hann feldi hann til jaröar; lét Einar þá kné fylgja kviði og geröi sig líklegan til að stinga útilegumann með knífi sem hann bar í skeiðum á belti sínu. Æpti þá útilegumaður mikið og beiddi Einar í öllum bæn- um að vægja sér og géfa sér líf; sagðist skyldi liuna þaö öllu góðu ef hann gerði svo. Einar mælti: ,,Seg mér fyrst nafn þitt og hvaða starfa þú hefir á hendi og eins hvar þú átt heima”. Útilegumaður mælti: ,,Oddur heiti eg og er Gunnlaugs- son; býr faðir minn hér skamt í burtu og þar á eg heima, en það er starfi minn að gæta fjárs okkar um daga og halda því til haga”. ,,Hvaö er fleira manna á bæ þín- um?” spuröi Einar. ,,Þar eru ekki aörir en viö faðir minn og tvær syst- ur mínar”. ,,Er faöir þinn útilegu- maður?” ,,Já” segir Oddur. ,,Svo

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.