Syrpa - 01.09.1911, Page 46

Syrpa - 01.09.1911, Page 46
44 SYRPA. sæl Sigríður mín!” Við þetta á- varp varð henni í meiralag'i hverít. Hún leit til hans og var þá blóðrjóð út að eyrum, en gat þó fljótt áttað sig og segir: ,,Sæll vertu”. Síðan fór hún út með það sem hún hélt á og varð eigi meira af samtali þeirra í það sinn. Nú var Einar orðinn einn enn þá einu sinni og fór þá náttúrlega fyrst að hugsa um stúlkuna, sem hann var núorðinnalvegsannfærður um, að væri hin sama, sem birtist honum í draumnum. Ef nokkur var mismunurinn, þá var hún enn þá yndislegri. Um þetta var hann að hugsa, þegar hún kemur inn í þriðja sinn. Læsti hún nú liurð á eftir sér, gekk svo innar og bauð Elnari, að draga af honum vos- kiæði og fá honum önnur þur. Þáði hann það strax með mestu ánægju, því nú gafst honum gott tækifæri, bæði til að virða stúlkuna fyrir sér og ef til vill, að tala við hana. Augu þeirra mættust að nýju, og enn varð hún kafrjóð og það hefir víst ekki verið fjarri, að Einar yrði það líka. Hann herti nú upp hugann og segir. ,,Heitir þú ekki Sigríður?” ,,Jú”, segir hún. ,,En hver sagði þér nafn mitt?” ,,Þaðer nú saga að segja frá því”, segir Einar, ,,En et þú vilt vera svo góð, að hlusta á, skal mér vera hin mesta ánægja að segja þér það”. ,,Eg get ekki skilið að saga þín sé svo Ijót, að eg megi ekki hlýða á hana”, mælti Sigríður, og settist um leið á stól gagnvart honum og var nú að sjá mjög róleg. Roðinn í kinnum hennar var nú farinn að jafna sig, og gull-bjarta hárið, í fallegu fléttunum, liðaðist niður með vöngum hennar, allt á herðarniður, og það styrndi á gráu peysufötin, sem fóru henni vel; Iimaburður og skapnaðarlag, var allthvaðöðru samsvarandi, svo Einari kom í hug að hér væri komin Sigríður Eyjafjarðarsól”, því söguna af henni hafði hannlesið. Og núfanst honum sagan vera orðin að lifandi mynd og þessi mynd gagntaka sálu sína og hjarta. Eltir dálitla þögn og umhugsun- artíma, byrjaði Einar síðan að segja Sigríði sögu sína og var það upp- haflð, að hann sagði henni fyrst hver hann væriog þarnæst hvað hann væri að fara og síðast frá draumnum og því um leið, að það hefði verið hún sjálf, sem sagði honuni hvað hún héti. Töluðu þau um þetta á víð og dreif og ótal margt fieira, sem hér verður ekki getið, en sag- an mun síðar leiða í ljós, þar til kontið var frarn að miðnætti, þá hvarf hún frá honutn, og gekk til svefns en þó ekki — eftir því sem söguftóðir menn segja — fyrr, en hún hafði boðið honum góðar næt- ur, með kossi. Einar fór nú líka að sofa og sagðist hafa sofið vel, þar til kominn var albjartur dagur. Klæddi hann s'§' c’g' gekk út að líta til veðurs. Tók hann eftir því að bærinn stóð í stórum og fögrum dal, og að háir hálsar eða lág fjöll voru alt um kring. Enginn maður var úti, svo hann hafði hið bezta næði, til að skoða sig um. En þegar hann hafði gert svo góða stund, sneri hann aftur til bæjardyra, en í því kemur Oddur út og býður honum góðan daginn mjög vingjarnlega. Tók Einar því á sama hátt. Ræddu þeir nú utn landsins gagn og nauð- synjar. Síðan bað Oddur hann að koma inn með sér og sagðist nú ætla að fylgja honum til föður síns, sem hann sagði að væri veikur, bæði í bakinu og undir síðunni, eft- ir fallið á hestasteininn kvöldið áður. Nú gengu þeir inn og allt til bað- stofu. Var hún á gólfi, en sterkog laglega bygð. Hús var í öðrum enda hennar og hurð fyrir, þar gengu þeir int,. Eitt rúmstæði var undir hliðinni, en stafngluggi var á herberginu og þar stóð undir lag- legt borö. Milli borðsins og rúms- ins var stóll og áhonum sat Helga; en Sígríður sat á öðrttm stól við fótagaflinn á rúminu. Karlinn faðir þeirra lá í rúminu; var að

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.