Syrpa - 01.09.1911, Síða 49

Syrpa - 01.09.1911, Síða 49
DÆTUR ÚTILEGUMANNSINS. 47 eftir dög'un; g-tnjju þeir nú léttan til miödags, settust þá mönr og hvíldu sig og snæddu miðdagswiiO. Voru þeir þá komnir svo langt aö Einar var einfær, aö hafa sig aö kofa þeirra félaga, einhverntíma næstu nótt, eða undir morgun. En áður en þeir skildu, gerðu þeir þau ráð með sér, að Oddur skyldi koma til móts við Einar hjá kofanum, á næsta vori, þá er sjö vikur væru af sumri og skyldi hann hafa meö sér þrjá hesta undir reiðfæri, því Einar ráðgerði, að flytja með sér dót sitt á einum hestí, en skreið, fisk og hákarl á tveimur og skildu með vinsemd og öllum lukkuóskum. Síðan sneri Oddur til haka, en Einar hóf göngu sína áleiðis til kof- ans. Segir nú ekki af ferðum hans fyrri en hann náði þangað með heilu og höldnu næsta morgun, þegar dagur var að renna. Var hann þá orðinn bæði syfjaðuroglúinn, einsog nærri má geta, eftir næstum hvíld- arlausa göngu í 24 klukkutíma. Þegar að kofanum kom, stóð Bjarni fyrir dyrum úti og var þá ferðbúinn að halda til bygða. Var hann orðinn úrkula vonar um að sjá Einar aftur lifandi, en hafði þó hald- ist við þarna, allan þennan tíma og barist milli vonar og ótta. Það varð því, sem nærri má geta, hinn mesti fagnaðarfundur með þeim og bað Bjarni Einar oft og innilega, að fyrirgefa sér, að liann skyldi hafa yfirgefið hann, eins og hann gerði, þegar þeir skildu síðast í hrauninu. Einar kvað hann skyldi jíað ei harma; alt hefði farið vel og sér hefði liðið vel, en nú væri hann þreyttur, svo hann yrði að taka hvíld, helzt allan daginn, og næslu nótt. Þessu var Bjarnisamþykkur, gekk Einar þá til svefns, en Bjarni sat yfir honum á meðun, og hafði sér það til dægrastytiingar, að hugsa lim þaö, sem fyrir Einar mundi hafa borið því hann taldi víst, að hann mundi hafa lent til útilegumanna. Svaf nú Einar í næði þar til nokkuð afhallandi nóni, að hann vaknaði, dvöldu þeir nú það sem eftir v.ir d igsins og næstu nótt í ko.anum og höfðu það sér til dægr- styiti.igar, aö Einar sagði Bjarna í iiunaði alla ierðasögu sína og hlýddi Bjarni á hana með mikilli eftirtekt. Houum fanst og það lét hann þegar 1 liós við Einar, að hann hefði verið þarna nokkuð Iljót- ráður og ekki litið sem bezt fram í tímann, að fara undireins að trúlof- ast dóttir útilegumanns, sem hon- um blandaðist ekki hugur um, að hlyti að vera heiðin. Það var nú næstum það óttalegasta. Og hitt gekk næst, að Einar skyldi ætla að lifa alla sína daga meó óþjóðalýð; því ekki var svo sem til þess ad liugsa, að flytja stúlku, sem svona stóð á til mannabygða og' ætla að hafa hana þar, innan utn sannkrist- ið fólk. Lögin og kirkjan leyfðu það ekki. Já, hér var sannariega úr vöndu að ráða, efiir skoðun Bjarna. Honum fanst, að þetta ganga næst því, að Einar hef ’i of- urselt sig þeim g.uula og út af þessu hélt hann nú lánga vandlæt- ingaræðu yfir Einari, og reyndi til með öllu móti, að fá hann til að hætta við fyrirætlan sína. llann ráðlagf’i Einari að fara t'l Vestur- heims á næsta vori, eins og hann hefði svo oft verið að rAðgera og skifta sér ei meira af þessu úti- 1 jguþjófahys.ki, eins og honum f mst nú réttast að n .fna það. Ilét h mn honum þáfullri vináttu sinniog fvlgi, el h inn vildi það gera. A meðan Bjarni lét dælu ]>essa ganga, sat Einar og hlýd.li á hann rólagur. En þegar Bjarni var hættur, tók Einar til máls á þessa leið: ,,Mikla vandlætingtiprédikan hefir þú nú haldið vfir mér, kunn- ingi góður! En það skal eg segja þér, í eitt skifti l'yrir ö 1, að þessi ræða þín breytir ekki skoðun minni, eða fyrirætlunum, hina minstu vit- und. Eg hefi svarið þess dýran eið að bregða aldrei trygð við konu þessa, hvað svo sem öllu öðru líður. Eg er ánægður með hana og eg held að fólk hennar sé al’ veg eins gott og heiðvirt ein

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.