Syrpa - 01.09.1911, Síða 59

Syrpa - 01.09.1911, Síða 59
DÆTUR ÚTILEGUMANNINS. 57 systkini, sem ætluðu suöur þegar næsta strandferðaskip kæmi og tóku allir það trúanlegt. Á tilteknum degi sigldi Crawford skipstjóri inn á Eyjafjörð og lagði skipi sínu skamt frá landi, þar sem kölluð er Oddeyri. Og í sömu mundir kom strandferðaskipið þar inn á höfnina. Var nú ys og þys á öllum; hver hugsaði nú mest um sjálfan sig, því margir voru þar, s'em ætluðu suður. Einar lét nú færa farangur þeirra niður ábryggju og beið svo á þeim stöðvum þar til kl. 12 um nóttina, að þau Helga og hann stigu í skipsbát Crawfords skipstjóra og réru út að duggu hans, sem var sú sama, er þau Einar og Sigríður fluttust með, tíu árum áður. Þannig komst nú Einaraflandi burt í annað sinn, án þess nokkur veitti því eftirtekt. Þarnæst léttu skip- verjar atkerum og létu í haf og gekk ferðin greiðlega til Englands. Þegar þangað var komið, og skip- verjar höfðu bundið duggu sína við hafnarbryggjuna, stigu þau á land tengdasystkinin; var Helga hin frískasta, og hafði verið svo, frá því þau fóru á stað, frá heimili henn- ar. Héldu þau síðan upp að heim- ili Crawfords og tóku sér þar hvíld og góðar náöir í hálfan mánuð og bar nú ekkert sérlegt til tíðinda. — Á meðan þau dvöldu þar, höfðu þau það sér til skemtunar, að ganga um bæinn, skoða listigarða og fara á leikhús og var Mr. Crawford jafn- aðarlega í för með þeim. Sýndist Helga una þessu mæta vel og var hin kátasta. Nú verðum vér þessu næst, að minnast dálítið á Mr. Crawford. Hann var ekkjumaður eins og áður er drepið á og eitthvað kringum fjöru- tíu ára að aldri. Var hann fremur vel við efni; átti laglegt íbúðar- hús þar í bænum og helminginn í skipi því og veiðarfærum, sem hann átti yfir að ráða. Var hann maður mikill vexti og hinn karlmannleg- asti. Fríður sýnum og hversdags- lega glaður og fyndinn í samræðum og líkaði þeim gestum hans því bet- ur við hann, sem þau kyntust hon- um lengur. Mr. Crawford var niað- ur barnlaus og bjó þarna með ráðs- konu, en hún var móðursystir konu hans og nokkuð við aldur, en samt var hún góð bústýra og hafði alt í röð og reglu þar á heimilinu. Einn dag, stuttu áður en þau Ein- ar og Helga höfðu ákveðið að leggja af stað til Ameríku, kom Mr. Craw- ford að máli við Einar og tjáir hon- um þar í trúnaði, að sér Iítist vel á Helgu tengdasystir hans og að sig fýsi að fá hana fyrir eiginkonu, væri þess nokkur kostur og biður hann nú Einar að vera sér innan handar og túlka málið fyrir sig við hana, því ,,sá var gallinn á gjöf Njarðar”, í þessu máli, að Helga skildi ekki eitt orð í enskri tungu. Tók Einar, fyrir sitt leyti, vel undir þetta mál og hét honum liðveizlu sinni. Hann áleit, að það væri gott jafnræði með þeim, að öllu öðru leyti en því að hvorugt skildi annaö, en það gat nú náttúrlega lagast, með tíð og tíma. Brá Einar Helgu þarnæst á eintal og tjáði henni alla málavöxtu og fýsti þess fremur en latti, að hún tæki manninum. Tók hún þessu tilboði ekki fjarri, því henni leist vel á Mr. Crawford. Hún varlíkakom- in vel á veg fullkomins gittingar- aldurs; orðin hálf fertug. Það lak- asta í þessu máli, að henni fanst, var að hún kunni ekki málið og síðan það, að hanti átti heima á Englandi, en ekki í Ameríku, þar sem hún ætlaði að setjast að. Lá því nærri að henni fyndist þetta frágangssök. Samt skaut hún því öllu til ráða Einars og bað hann að gera það eitt í þessu máli, er hann sæi sér fyrir beztu. Settist Einar þá niður, líkt og gamli Njáll og fleiri fornaldar- vitringar voru vanir að gera, til þess að hugleiða málið og var hann ekki lengi að komast að niðurstöðu. Hann ráðlagði Helgu að taka manni þessum, með þeim skilyrðum, að hann seldi eigur sínar á Englandi og flytti með þeim til Ameríku, ella skyldi hann verða af kaupunum. Þetta fanst Helgu þjóðráð, því hún

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.