Syrpa - 01.09.1911, Side 62

Syrpa - 01.09.1911, Side 62
Þorsteinn Þ. Þorsteinsson: I L L A G I L. I. *ff fögrum dal á NorÖur-íslandi ** stendur bærinn Hamar undir háu fjalli, sem hann tekur nafn sitt af., Snarbrattar hamrasyllur og bergstallar liggja eftir endilöngu fjallinu, nokkuö fyrir neöan fjalls- brúnina. Gegnum hamralögin og hillurnar skeiast all-mörg gil, stór og smá. Ná sum þeirra alt frá egg- inni og niöur á undirlendiö, en flest þeirra myndast ekki ofar en í hömr- unum. Þegar ofan á sléttlendiö kemur, breytast öll þessi gil í grasi gróna vatnsfarvegi eöa smálæki, sem vætla áfram í ótal bugðum eftir enginu og niður í dalsána. Stærsta giliðheitir Illagil ogþyk- ir erfitt yfirferöar og hættulegt. Þeg- ar gangnamenn eöa smalar eru í sauöfjárleit og ganga út og suöur eftir hamrabeltunum, gjöra þeir lykkju á leiö sína, þegar aö Illagili kemur og fara upp fyrir upptök þess efst við fjallseggina, sem ekki er mjög langur spölur frá klettabelt- unum. Hefir margur röskur og hugdjarfur drengur unaö því illa, aö þurfa aö beygja upp fyrir Illagil í fjárleitum eftir hömrunum, en fæst- ir hafa þeir veriö sem langað heíir að tefia á tvær hættur og fara beint yfir gilið, því hryllilegur dauði bíöur hvers þess manns, sem veröur fóta- skortur þar uppi. Hliðar Illagils á leiö þessari eru hallandi móhella og lausamöl á botni þess og ómögulegt aö fóta sig, en rétt fyrir neðan taka viö þvergnýptir stallarog bergsnas- ir í gilinu diminu og ægilegu. Þaö gengur saga um þaö í daln- um aö Illagil dragi nafn sitt af at- buröum þeim, er nú skal greina. Endur fyrir löngu voru tveir rösk- ir piltar um tvítugsaldur aö leita a^ sauöfé í fjallinu aö hausti til og gengu suöur hamrana, unz þeir komu aö Illagili. Var annarþeirra vinnumaöur á Hömrum, en hinn var sonur bóndans er þá bjó þar. Taldi vinnumaöur sjálfsagt aö ganga upp fyrir giliö, en bóndasonur mælti á móti og kvaö þaö dugandi drengj- um skömm aö taka æfinlega krók á sig fyrir ekki hættumeira hlaup, en þaö, aö hlaupa yfir giliö. Sagöist hann skyldi fara fyrst, ef vinnumaö- ur þyröi aö koma á eftirog storkaöi honum mjög. Vinnumaöur kvaö þetta ekki myndi góöri gæfu stýra, en mælti þó loks aö hann skyldi koma á eftir ef bóndasonur færi fyrst. Hljóp hinn síöar nefndi nið- ur í giliö, yfir lausamölina í botn- inum og jafnfljótt upp á gilbarminn hinumegin og sakaði ekki. Vinnu- maöur hljóp á eftir, en varÖ fóta- skortur í lausgrýtinu, rak upp hátt hljóð og var á samri stundu hrapaö- ur ofan fyrir hengifiugið. Um kveldiÖ kom bóndasonur heim og bar vinriumanninn ífangi sér, all- an brotinn og sundur tættan. Haföi hann eftir atburöinn sorglega, geng- ið ofan fyrir hamrana á öðrum staö og ofan í Illagil fyrirniöan klettana, þar sem vinnumaöur lá. Sagöi hann frá atburöinum, eins og hann haföi gengiö og segir sagan aö faöir hans hafi átalið hann harðlega og mælt um leiö, að eigi myndi vinnumaöur verða hinn síöasti er gil þetta hiö illa yröi aö bana. Segöi sér svo hugur um, að ætt sín myndi veröa aö gjalda glópsku sonar síns bitur- lega. Um nóttina vaknaði fólkiö í baö- stofunni viö þaö, aö komiö var upp

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.