Nýjar kvöldvökur - 01.04.1933, Blaðsíða 10

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1933, Blaðsíða 10
56 NÝJAR KVÖLDVÖKUR En hvaS er nú þetta Flugvél hring- sólar hátt uppi í loftinu. Það er ekki nein af hennar flugvélum. Hver getur það verið? Og skelfing flýgur hann heimskulega. Jeannine hefur smám sarn- an orðið skynbær á flug, og enginn mundi geta talið henni trú um, að þetta sé eðlilegt. Og nú flýgur hann til jarðar, áræðinn, — fífldjarfur. Jeannine er verulega skelkuð, — þetta getur ekki farið vel. Hún gefur flugmanninum merki um að vera aðgætinn, og hleypur í ákafanum framan að flugvélinni. »Hvern fj...... á þetta að þýða?« hrópar flugmaðurinn, þegar hann stekk- ur út úr flugvélinni. Hann sér óhreinan vélfræðinema, sem stendur frammi fyr- ir honum og baðar út höndunum. »Réttast væri að flengja þig og reka þig úr flugfélaginu«, segir flugmaðurinn. Og áður en hana varir, fær hún svo mikið högg á endann, að hún kastast til og dettur. — Veslings Jeannine! Hún háhljóðar og nýr tárum og olíu um and- litið. Fögur er hún ekki, en húfan er dottin af henni, og nú fyrst sér flugmað- urinn, sér til skelfingar, að þetta er stúlka. En það virðist ekki hafa nein áhrif á hann. Hann er meira að segja svo djarf- ur að bæta við: »Hefði ég vitað, að þér voruð stúlka, þá hefði ég framkvæmt hótun mína«. En Jeannine er heldur ekki af baki dottin. Þvílíkur strákur! Hvað ætli hann ímyndi sér? Hún eys heilum hóp af frönskum blótsyrðum yfir hans synduga höfuð. Hinir flugmennirnir eru nú komnir til sögunnar. »Þetta er dáfallegt, vinur! Veiztu, að þetta er matseljan okkar?« En Jeannine vill ekki taka við afsök- unum. Meðan flugmennirnir bjóða hinn nýja félaga sinn velkominn, höktir hún heim og nýr höggstaðinn. . Þetta skaL hann fá borgað! »En hvað er nú þetta?« segir frú Ber- thelot, þegar Jeannine kernur niður um kvöldið til að bera á borðið, »þú ert þá í sunnudagafötunum«. Hvers vegna roðnar Jeannine? Nú er hún svo fín og yndisleg í sparifötunum,. að enginn gæti þekkt þar aftur óhreina drenginn, sem í morgun fékk þetta smán- arlega spark í endann. Og nýja flugmanninum, Blythe flug- liðsforingja, þykir breytingin mikil. Hann rekur upp stór augu af undrun. »Hún er heldur álitlegri núna«, hvísl- ar hann að sessunaut sínum. En Jeannine hefnir sín hræðilega. Hún býður alla flugmennina velkomna með kossi, en fitjar aðeins upp á nefið fram- an í Blythe, svo greinilega, að ekki verð- ur um villzt. En með sjálfri sér er hún þó farin að hugsa um, hvort ekki muni réttast að fyrirgefa honum, þar sern hann er auðsjáanlega raunamæddur og iðrunin skín út úr fallegu, bláu augunum hans. »Nei, ekki ennþá«, hugsar Jéannine, meðan hún sker fallegu, brúnu gæsina niður, sem frú Berthelot hefur fórnað í tilefni af komu nr. 7. ó, þú litla, glettna Jeannine! Með reiðilegum svip setur hún disk fyrir nýja gestinn með eftirtöldu sælgæti: Tveim gæsafótum, gæsarhálsi og feitu gæsarþjói. Hvað skyldi Blythe gera við þetta? Hann nagar gæsarhálsinn og öf- undar félaga sína hjartanlega, sem Jeannine gefur falleg, feit gæsalæri og bringu, um leið og hún brosir töfrandi við þeim. En ef við gætum skyggnzt inn í hjarta Jeannine, þá mundum við verðá hissa. Henni lízt einmitt vel á óvin sinn, því að oft skotrar hún augunum til hins fallega

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.