Nýjar kvöldvökur - 01.04.1933, Blaðsíða 21

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1933, Blaðsíða 21
OG HANN SVEIF YFIR SÆ... 67 nnum. en hvorugur mannanna gerði sig líklegan til að vinna selunum minnsta mein. Stærðar hvítabjörn fór frárn hjá í svo sem fimm metra fjarlægð. Hann hægði á sér og horfði á þá félaga, en þeir rétt aðeins gáfu honum hornauga, þreytulegir og eins og hvíldi yfir þeim einhver drungi. Og bangsi starði auð- sjáanlega steinhissa á þessa þögulu menn og hinn kynlega farkost þeirra. í suðri gat að líta fjöll í fjarska, og þangað stefndi báturinn, sem þeir voru á, Jens og félagar hans. Nú hafði ísinn hrakið þá norður eftir í annað sinn. Fyrir þrem dögurn síðan höfðu þeir ver- ið komnir suður í mynnið á Rauðaflóa. Það hafði kostað þá fjögurra daga strit að komast þangað. Einum tvisvar sinn- um höfðu þeir getað notað seglið stutta stund og látið líða úr handleggjunum á sér, en annars höfðu þeir orðið að streit- ast við árarnar. í seinna skiftið, sem byr rann á, höfðu þeir verið konmir svo nærri landi, að beztu vonir voru vakn- aðar í brjósum þeirra — og byrinn bar þá svo óðfluga nær og nær. En óðar en varði lægði vindinn — og brátt kom stillilogn. Harður frástraumur bar ísinn frá landi og jakarnir þrýstust saman í samfellda breiðu. Þeir félagar urðu að draga bátinn upp á ísinn — og án þess að þeir gætu nokkuð að gert, bar þá norður á bóginn — í áttina til hafs, og svo sárt sem það var sáu þeir nú, að allt þeirra erfiði hafði verið til einskis. Þá hrakti í annað sinn norður í haf... Og nú voru hendurnar á þeim orðnar bólgn- ar og illa leiknar af róðrinum, og ef þeir slepptu árunum nokkur augnablik, þá var eins og eldur brynni í lófunum, þegar þeir gripu aftur um hlummana. Harðjaxl hafði alltaf verið grann- holda. Aldrei hafði nokkur minnsti fitu- vottur á hann safnazt. Það varð því ekki sagt, að hann hefði tekið miklum breyt- ingum að holdafari, en hreyfingarnar voru svo dauflegar, að þær báru þess ljósan vott, hve mjög var af honum dreg- ið. Jens og Júlíus voru lítið annað en skinin beinin, en samt voru þeir máttar- meiri en Harðjaxl. Þeir félagar lögðu að stórum ísjaka. Þeir megnuðu ekki að halda áfram. Þeir hentu allri grávörunni upp á ísinn og fóru síðan að tosa bátnum upp á skör- ina. Svo sem 50—60 metra frá þeim stóð hvítabjörninn og virti þá fyrir sér. Svo fór hann að þoka sér í áttina til þeirra. Þeir litu varla við honum en héldu áfram að bisa við bátinn. Loks tók þó Jens riffilinn og mælti: — Þegar hann er kominn í gott skot- færi, þá verðum við víst að skjóta hann og drekka svo úr honum blóðið. Hinir sögðu ekki neitt. Svo var illa komið fyrir þeim félögum, að þeir fundu ekki til svengdar. Þá langaði aðeins til að leggjast út af og sofna... Það hefði nú verið sök sér, ef þeir hefðu átt kost á einhverri lystugri fæðu, — en heitt bjarnarblóðið! Þá hryllti hálfgert við að hugsa til þess. Þeim lá við að kasta því upp, strax og þeir voru búnir að drekka það — en ef nokkur von átti að vera um líf, þá urðu þeir að næra sig. Þegar þeir voru búnir að koma bátnum upp á ísinn, settust þeir niður. Þeir höfðu hljótt um sig, og björnin þokaðist nær og nær. Hann fór ákaflega hægt, reis við hvert skref upp á afturfæturna til að skyggnast um. Hann vildi fullvissa sig um, að engin hreyfing væri nú þar á, sem þessar þrjár kynjaskepnur höfðu verið á kreiki. Stundum stóð hann lengi i einu á afturfótunum og skimaði og hlustaði. Loks hélt hann svo rakleitt á- fram, og eftir stutta stund var hann ekki nema svo sem 10 metra frá þeim félög- um. Þar nam hann staðar. Hann horfði 9*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.