Nýjar kvöldvökur - 01.04.1933, Blaðsíða 18

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1933, Blaðsíða 18
64 NÝJAR KVÖLDVÖKUR hvert komizt verður«, heyrir Jeannine þá svara, og þeir fjarlægjast óðfluga. Hún teygir fram handleggina, eins og hún' vilji halda honum eftir, manninum, sem ef til vill er nú slitinn frá henni fyrir fullt og allt. Hún horfir á eftir vagninum, þangað til hann hverfur í fjarlægð. örvæntingin nær aftur valdi yfir henni, og hún fellur grátandi til jarðar. En sá tími kemur samt sem áður, að hún verður að halda áfram. Hún verður að leita, þangað til hún finnur hann. Einmana og afrækt leggur hún leið sína um þær slóðir, þar sem allt er nú horfið, er hún þekkti. Þannig reikar hún áfram, þar til hún allt í einu nemur staðar við rústir þýzkr- ar flugvélar. Einnig þar lá alblóðugur, limlestur maður. En það var fjandmað- ur. Hann virtist vera að dauða kominn og þrýsti konumynd að vörum sér. Hann stynur upp nokkrum sundur- lausum orðum á móðurmáli sínu, en Jeannine hugsar einungis: »Ef til vill hefur liann skotið Philip minn niður«. Frávita af gremju og sársauka grípur hún upp stein. Jafnvel þessi litla stúlka er hrifin af hefndarfýsninni, — fýsn til að hefna þess manns, sem frá henni hef- ur verið tekinn. En höndin fellur máttlaus niður, þeg- ar hún sér myndina í hendi hans. Þessi maður elskar líka. Þessi deyjandi mað- ur á líka stúlku í fjarlægu, óþekktu landi, sem ef til vill nefnir nafn hans andvarpandi á þessari stundu. Samúðin altekur Jeannine. Hún skilur það nú, að hið illa á ekki aðeins heima hinum megin við skotgrafirnar, og að einnig þessi maður, þótt óvinur sé, hafi hjarta, sem grætur við tilhugsunina um dauðann, fjarri þeirri, er hann elskar. Hún beygir sig yfir hann, og hann stynur upp: »Ungfrú, berið henni kveðju frá mér«. Svo fellur höfuðið til jarðar. Hann er dáinn. Og Jeannine ráfar áfram — — inn í stóra bæinn, þangað sem sjúkravagn- arnir fara með særðu mennina, og þar sem hún vonar að finna elskhuga sinn. Sjúkrahúsið er byggt við hliðina á dýragarðinum. í þessu einkennilega um- hverfi liggja þeir allir hlið við hlið, vinir og óvinir, allir safnast þeir hér saman á þröskuldi lífs og dauða. Einurðarlítil og óttaslegin spyr Jean- nine forráðamanninn hvort nokkur Blythe flugliðsforingi sé meðal hinna særðu. Hinn kaldranalegi hermaður sér sorg hennar, og jafnvel hann, sem er svo van- ur að horfast í augu við örvæntinguna, hrærist nú af að sjá þær þjáningar, sem greyptar eru í andlit ungu stúlkunnar. »Bíðið andartak«, segir hann. Hann sækir sjúkraskrána, þessa hræðilegu bók, sem líkt og dómari mælir fram orðin: Líf eða dauði. Hranalegi herforinginn hristir þögull höfuðið, því að bókin segir Blythe flug- liðsforingja dáinn. Veslings Jeannine les dánartilkynn- inguna í svip forstöðumannsins. Henni finnst skyggja umhverfis sig. Aðeins ein hugsun nær tökum á henni: Hann er dáinn, — dáinn. Þarna stendur hún gersamlega úrræða- laus. Veit ekkert, ■— skilur ekkert. Hvað hefur hún hér að gera framar, nú, þegar sól lífs hennar er hnigin að viði? Hún læðist út, — burt frá þessu heim- kynni sorgarinnar, út í mannösina, sem hugsunarlaust og miskunnarlaust við sorg hennar streymir fram hjá henni. Hún ráfar, án þess að vita hvert, og sér, án þess að sjá, þangað til eitthvað-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.