Nýjar kvöldvökur - 01.04.1933, Blaðsíða 26

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1933, Blaðsíða 26
72 OG HANN SVEIF YFIR SÆ... um, og því fleiri, sem þeir eru, því hægra er þeim urn vik. Þegar báðir flokkarnir eru komnir alveg að rostungunum, hefst árásin. Sá, sem sterkastur er og hugrakkastur í hvoru liði, þýtur að þeim rostungnum, sem næstur liggur, stingur hann í brjóst- ið og drepur þannig eitt dýrið af öðru. Félagar hans fylgja honum fast eftir og athuga það með árvekni, hvort nokkur af dýrunum ráðist á hann. Stundum kem- ur það fyrir, að fjögur til fimm dýr ráðast á hann í einu, og þá tjáir nú ekki annað en að láta hendur standa frajn úr ermum. Mennirnir og dýrin horfást þarna í augu, og dýrin, sem eru hvort- tveggja í senn, hrædd og hamstola af reiði, öskra svo ferlega, að undir tek- ur í hæðunum í kring. úr sárunum foss- ar blóðið, dimmrautt og heitt — og brátt vaða veiðimennirnir í ökla þykka blóð- og sandleðju. Rostungarnir liggja í þrem röðum, og ríður fyrst og fremst á því fyrir veiði- mennina, að drepa dýrin í neðstu röðinni svo fljótt, að þau, sem í miðið eru, geti ekki forðað sér — því ef þau geta það, þá opnast hlið fyrir þau efstu. Takist að drepa hvern einasta rostung í neðstu röðinni, þá eiga veiðimennirnir nokk- urnveginn víst að geta gert út af við alla hina, því að rostungunum veitist mjög örðugt að skríða yfir skrokkana af félögum sínum. Síðla kvölds kom varðmaðurinn til þeirra skipstjóranna og sagði þeim, að nú væru rostungarnir allir í þéttum hnapp inni á sandvíkinni — og væru öll líkindi til, að þeir mundu skríða á land um flæðina. Skipstjórarnir höfðu búizt við þessum fregnum. Þeir höfðu látið brýna spjótin, vopnað liðið og skift því í tvo flokka. Allir höfðu fengið nákvæmar leiðbéining- ar um það, hvernig þeir ættu að hegða sér, og það hafði verið brýnt fyrir hverj- um og einum, hverjar afleiðingar gætu orðið, ef einhver yrði skelkaður eða. brygðist skyldu sinni. Hvert minnsta hik gat valdið dauða eins eða fleiri af veiði- mönnunum og orðið til þess, að fleiri eða færri af rostungunum slyppu tíl sjávar. AIIs voru þarna 22 menn — og allir vcru þeir röskir og vanir þessum veiði- skap. Enginn rnaður var skilinn eftir á skipunum. Jafnvel matsveinunúm voru fengin spjót í hendur og þeir látnir taka þátt í árásinni. Striga var vafið um skautana á ár- unum og síðan var róið hljóðlega til lands. Annar helmingurinn af liðinu lagðist í fjöruna vestan við rostungana, en hinn helmingurinn varð að taka á sig' langan krók, til þess að geta sótt að þeim að austanverðu. Fyrst fóru þeir félagar yfir litla á, síðan upp lága brekku og yfir dálítinn ás. Því næst fóru þeir ofan í fjöruna austan við hópinn. Rostungarnir voru steinsofandi, og heyrðust hroturnar langar leiðir. Veiði- mennirnir læddust nú að þeim bæði að austan og vestan. Þeir héldu sig í þéttum hóp, og var Jens frá Stóra-Skarði í far- arbroddi í vestara liðinu, en Jóhannes Nílsen í því eystra. Skjótur sem elding hóf Jens spjót sitt á loft og keyrði það af heljarafli í brjóst- ið á gömlum brimli. Brimillinn kipptist við og lyfti höfðinu, en svo sé það niður, og skepnan bærði ekki á sér. Jens kippti spjótinu úr sárinu, gekk tvö, þrjú skref og rakspjótiðíbringunaáöðrum rostung. Og nú var hvert dýrið drepið af öðru. Dýrin reyndu eftir mætti að koma liöggi á þessar undarlegu verur, sem röskuðu ró þeirra og ofsóttu þá. Feiknstórir haus- arnir rykktust fram og aftur, og það blikaði á höggtennurnar í daufri kvöld- birtunni. Svolítill kópur skreið ýlfrandi

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.