Nýjar kvöldvökur - 01.04.1933, Blaðsíða 19

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1933, Blaðsíða 19
ÞEGAR SÝRINGARNIR BLÓMGAST. 65 vekur hana skyndilega af þessu leiðslu- ástandi. Hún fer fram hjá blómasölu- stað, og ilmur blómgaðra sýringa vekur hana til meðvitundar um, hvað fyrir hefur komið og hvað hún hefur misst. Þá grýpur hana ný hugsun. Hún vill, að angandi sýringar hylji hann, — — vill að angandi blóm, sem minni á vorið í ástum þeirra, hvíli á líkbörum hans. í huganum sá hún hann liggja fölan og blóðugan á börunum. Tryggu, brúnu augun hans voru brostin og fjarlæg. En sýringarnir, sem voru orðnir henni tákn um ástir þeirra og skammvinna ham- ingju, áttu að slétta úr þjáningardrátt- unum á andliti hans. Já, Hún var ná- lega viss um, að ilrnan sýringanna mundi koma honum til að brosa af hamingju, jafnvel nú í dauðanum. Þessi hugsun virtist gefa særðu hjarta henriar stundarfró. Takmarkalaus sorg- in, sem hingað til hafði verið svo þung, að engin tár vættu augun, fékk nú far- veg í táraflóði um bleika vanga hennar. Hún kaupir sér stóran vönd og snýr aftur að öðrum inngangi sjúkrahússins, þar sem sjúkravagn er í sömu svifum að losa sig við sinn ömurlega farm. »Til Blythe flugliðsforingja«, hvíslar hún um leið og hún réttir einum yfir- mannanna blómin. Og hún bætir við: »Leggið þau fast við höfuð hans, — við vanga hans, — þakka yður fyrir«. Og aftur snýr hún út í mannfjöldann. En Blythe flugliðsforingi er ekki dá- inn. Hann lifir. Upplýsingarnar, sem Jeannine hafði fengið, stöfuðu af nafna- skiptum. Blómiri, angandi sýringarnir, komust á sinn stað við höfðalag Blythes, og þegar ilrnur þessara blóma barst að vitum hans, raknaði hann úr dvalanum. Það var eins og Jeannine stæði við sjúkrabeð hans og kallaði á hann. »Jeannine«, hrópaði hann og reis upp í rúminu með snöggu viðbragði. »Jean- nine, Jeannine«. En engin Jeannine var sýnileg. Ilún ráfaði grunlaus yfir stóra torg- ið framan við dýragarðinn, fram hjá öllum særðu mönnunum, örkumlamönn- unurn og þeim, sem voru á batavegi. Undir eftirliti hjúkrunarkvenna sátu þeir þarna á torginu í legustólum, önd- uðu að sér hreina loftinu og drukku í sig skin vorsólarinnar. Jeannine stóð skyndilega grafkyrr framan við einn legustólinn. Þar sá hún nú unga flugmanninn, sem hún hafði hughreyst með svo mikilli umhyggju það kvöldið, sem þau Blythe flugliðsforingi sameinuðust frammi fyrir dýrlingslíkn- eski Jeanne d'Ark undir blómguðum sýr- ingatrjám. »Philip er dáinn«, segir hún, »og ég elskaði hann svo innilega«. Meira getur hún ekki sagt. Enda er það allur hennar heimur. Ungi flugmaðurinn horfir á hana full- ur meðaumkunar. »Vertu hughraust Jeannine, eins og þú baðst mig um kvöldið. Mundu það, að ástin deyr aldrei«. »Philip, Philip, ást mín deyr aldrek, segir hún kjökrandi við sjálfa sig. »Þá, í sömu andrá, berst rödd út yfir torgið: »Jeannine, Jeannine!« Röddin kemur frá opnum glugga á efstu hæð sjúkrahússins. Blythe flugliðsforingi hafði staðið á fætur, dregizt út að glugganum og komið auga á Jeannine niðri á torginu. »Jeannine, Jeannine!« En rödd hans er of veik. Hún drukkn- ar í vagnskröltinu og hávaðanum frá torginu. Sér til skelfingar sér hann Jeannine halda áfram. Það var eins og hamingj- 9

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.