Nýjar kvöldvökur - 01.04.1933, Qupperneq 43
BÆKUR
89
Moldin ilmar.
Frjómoldin ilmar, og grasið grær.
Hér er gróður í hverju blaði og strái!
Nú er svellandi líf þar, sem svart var i
gær,
og sólskin og vor og lömb og ær!
Og leikandi börn klappa lófunum saman
bjarteyg og' brún í framan.
Hér ræð ég einn öllu! — Hér á ég allt!
Eg er alvaldur, frjáls, í sjálfstæðu ríki!
Eg strita og vinn, ég er sveittur og sæll,
sjálfur kóngur, herra og þræll!
Nú drýpur hunang af hverju strái!
Hér finn ég allt, sem ég þrái!
Frá morgni til kvölds, langan dýrlegan
dag
er Drottinn og ég báðir saman að verki.
Við syngjum báðir vorn sólarbrag
við sama fagnandi hjartaslag!
ó, hve það er yndislegt erfiði og garnan
að unna og starfa saman! —
Eg elska þig lífsþrungna feðrafold
með faðminn þinn græna í sólarmildi!
Eg elska þig frjósama móðurmold,
sem mettar þín börn og gleður allt hold!
Eg beygi mín kné í bæn og lotning:
Guð blessi þig, fóstra og drottning!
Helgi Valtýsson.
BÆKU R.
Nýjar Kvöldvökur munu ekki að jafn-
aði geta annara rita en þeirra, sem þeim
eru beinlínis send til umsagnar, og munu
þær þá segja kost og löst á hverri bók
og gera rækilega grein fyrir henni, eftir
því sem þeim býður við að horfa. út af
þessari reglu niun því aðeins brugðið,
að einhver bók komi út svo ágæt, að oss
finnist sérstök ástæða til að vekja at-
hygli á henni, eða þá hið gagnstæða, að
svo léleg bók berist oss í hendur, að oss
virðist fullkomin þörf á að vara við
henni.
Sem betur fer, er það hin fyrnefnda
ástæða, sem að þessu sinni er fyvir
hendi. Egils saga Skallagrímssonar, gefin
út af dr. Sigurði Nordal, er svo mikill
viðburður í okkar fábreytta bókmennta-
heimi, að geta verður um hann með
gleði, hvar sem annars er minnst á bæk-
ur. —
Þetta er fyrsta bindið, sem kemur út,
en annað bindið í röðinni af fornrita-
útgáfu þeirri, sem Hið íslenzka fornrita-
félag í Reykjavík beitir sér fyrir. Fyrsta
bindi ritsafnsins á vafalaust að vera is-
lendingabók og Landnáma, en ennþá er
ékki farið að gera ráðstafanir um út;-
gáfu þess. Hins vegar er V. bindið
komið í prentun og er þaö Laxdæla og
Halldórs þáttur Snorrasonar ásamt
Stúfssögu. Sér Einar ól. Sveinsson mag.
um útgáfu þess bindis. Sami maður sér
um útgáfu Eyrbyggju, sem verður IV.
bindið í röðinni og einnig kemur bráð-
lega út. Á næsta ári er ákveðið að komi
út Grettissaga og Bandamannasaga, sem
Guðni Jónsson býr undir prentun, og
Bjarnar saga Hítdælakappa, Gunnlaugs.
saga Ormstungu, Gísls þáttur Illugason-
ar, ásamt Vígastyrs sögu og Heiðarvíga,
sem Sig Nordal annast og síðan íslend-
ingasögurnar, hver af annári, í 14 bind-
um. En alls er áætlað, að ritsafnið
verði nálægt 35 bindum, hér um bil 30
arka stórum hvert.
Hið íslenzka fornritafélag er stofnað í
Reykjavík fyrir fjórum árum síðan og
hefir það tekizt það þjóðþrifavei'k á
hendur að gefa út vandaða vísindaút-
12