Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1925, Page 51

Eimreiðin - 01.01.1925, Page 51
Eimreiðin VÍSINDI, SÁLARRANNS. OG KIRK]A 47 nokkuð það óskeikult, sem berst oss fyrir milligöngu manna, hvort sem er ritning, kirkja eða vitranir miðla. Það er jafnmikil heimska að trúa á bókstafsinnblástur heillar bókar, eins og biblían er, eins og að neita því, að sum rit hennar séu til orðin fyrir guðlegan innblástur. Forn helgirit eru full innblásturs og bera sálrænum sannindum vitni svo að segja á hverri síðu. Draumar eru ein tegund hinna sálrænu fyrirbrigða og síð- ast en ekki sízt sjálfur dauðinn. Flestir sálárrannsóknamenn hafa smámsaman sannfærst um framhaldstilveru einstaklings- ins eftir dauðann. Segja má að þetta sé engin ný uppgötvun, því nálega öll írúarbrögð hafa haldið hinu sama að mönnum frá alda öðli. En hér er þó munur á. Trúarbrögðin hafa kent þetta sem trúarsetningu. Sálarrannsóknirnar hafa sannað þessa trúar- setningu vísindalega. í bókmentum trúarbragða er fjöldi frá- sagna um framhald lífs. En kenningin hefur aldrei verið nægi- lega viðurkend. Henni hefur lítt verið beitt til huggunar sorg- ttiasddum og þjáðum. Og enn minna hafa menn vitað um, hvernig framhaldslífinu er varið. Trúin á annað líf hefur verið lotningarfull en veik, svo veik, að menn hafa alment ekki horað að treysta henni. Fæstir hafa hlotið huggun þá, sem þekkingin veitir. En með sálarrannsóknunum hefur ekki að- eins verið leitt í ljós, að maðurinn lifi eftir líkamsdauðann, heldur hefur einnig verið sýnt fram á, að hann starfi áfram °9 að hægt sé að koma á sambandi milli heimanna. Þetta hann að verða dregið í efa. Enn eru til rannsóknamenn, sem ehki hafa látið sannfærast. En eg er viss um, að áframhald- andi rannsóknir muni færa öllum heim sanninn um þetta. Þrjár meginskoðanir eru ríkjandi um dauðann: Sú er fyrst, a& dauðinn sé endir alls, einstaklingsveran sé úr sögunni við andlátið, lífið slokkni um leið og heilinn hætti að starfa, ^naðurinn sé ekkert nema líkaminn, í gröfinni leysist hann UPP og rotni, frumefni hans gangi síðan í ný efnasambönd, u°i persónulegt vitundarlíf eftir andlát líkamans geti því alls ekki verið að ræða. Þetta er skoðun efnishyggjumannsins. ^argir þeir, er leggja stund á lífeðlis- og líffærafræði, svo
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.