Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1927, Page 44

Eimreiðin - 01.04.1927, Page 44
140 ÚR FERÐABÓK HOOKERS ElMREIÐlN úr bláu eða svörtu klæði, og er honum haldið saman um brjóstið, stundum með reimum, en oftar með silfursylgjum-1) Stutt treyja úr sama efni, stundum með litlu pilsi við, er höfð þar utan yfir, og er einnig hún fest um brjóstið með sylgjmj1 úr látúni eða silfri, ellegar reimum. Sokkarnir eru prjónaðir úr grófri ull og litaðir svartir, skórnir úr sauðskinni eða selskinni. Margar þeirra höfðu gild hrosshársreipi hangandi um axlirnar báðum megin og kappmellu á endanum til að bera í fiskibörurnar. Karlmennirnir voru að mestu eins til fara og hafnsögumenn okkar, nema hvað þeir voru flestir svart- klæddir og í svörtum sokkum. Bæði karlar og konur fóru oft úr treyjunni í stritvinnu og höfðu þá ekki annað utan yf>r handleggjunum en ermar ullarbolsins. Um útlit þessara kvenna er það að segja, að fæstar þeirra urðu kallaðar fríðar, og sumar gömlu konurnar voru tvímælalaust hinar ljótustu, sem ég hafði nokkurn tíma séð; en meðal hinna ungu voru fa- einar, sem myndi þykja laglegar, jafnvel á Englandi, og se dæmt eftir litarhætti, mun íslenzk stúlka, sem ekki hefur orðið að vera of mikið úti í iílviðrum, standast samjöfnuð við konur hvers lands sem er. Yfirleitt eru þær lágvaxnari en vorar konur, en bera sig vel, og er að ráða af yfirbragði þeirra, að þær lifi við ágæta heilsu. Yið virtum gaumgæfilega fyrir okk- ur þenna einkennilega hóp og fórum síðan heim til Savigniacs; en hús hans var smíðað í Noregi og ekkert frábrugðið timb- urhúsum, eins og ,þau gerast á voru landi, svo að mig fýsh lítt þar að vera. Eg hvarf því brátt út aftur, og varð mér reikað inn með ströndinni. Þar fór ég yfir læk á lítilli og ó- vandaðri trébrú og var þá kominn út úr bænum; síðan fór ég framhjá tveimur eða þremur bændabýlum og tók að leita að grösum milli klettanna«. Nú lýsir Hooker staurum, sem hann sá, með útbúnaði til að þurka á skinnklæði, og hefur mynd til skýringar. Tveir slíkir staurar, eða þrír eða fleiri. segir hann að sé við hvert fiskimannshús. Holtin kringum Reykjavík mintu hann mest a tindinn á Ben Nevis,2) grjótbjörg dreifð yfir flatneskju eða lágar hæðir og dálitlir grasblettir inni á milli. Þessa nótt var Hooker síðast í skipinu, en daginn eftir (22. júní) var faranS' ur hans fluttur í land og komið fyrir hjá Savigniac. Þá var hráslagaveður og þoka. 1) Hvorki þessi kjóll né pilsin er svo sítt, að það hylji að ráði hina ójögulegu kálfa þeirra; ella yrði þau þeim til baga að ganga á grjotinu- Eg man eftir einni gamalli konu, sem sífelt vann á eyrinni, og var aldre> síðklæddari en niður á hné (aths. Hookers). 2) Skozkt fjall, hið hæsta á Bretlandseyjum, 1343 m. yfir sjávarmál-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.