Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1927, Page 57

Eimreiðin - 01.04.1927, Page 57
eimreiðin W. A. CRAIGIE 153 honum eignað, en á það höfðu áður verið bornar brigður af fræðimönnum, sem um Plató höfðu skrifað. Við lok síðasta háskólamisserisins í St. Andrews sigraði Craigie í samkepni um námsstyrk, sem gerði honum það kleift að halda áfram námi í Oxford. En áður en hann færi þangað var hann tekinn að nema dönsku og íslenzku, og hafði löngun hans til þess að læra Norðurlandamálin vaknað við það, að kunningi hans einn hafði gefið honum dálítið ljóðakver á norsku. Þannig geta stundum hin smávægilegustu atvik haft hinar mikilvægustu afleiðingar. Þessu námi hélt hann áfram í Oxford, en ávalt tilsagnarlaust, því þegar hann kom þangað hafði Guðbrandur Vigfússon tekið helsóttina og andaðist skömmu síðar. Var því engin íslenzkukensla þar þá, og eins og kunnugt er lá hún niðri þar til árið 1905 að Craigie tók sjálfur að kenna íslenzku. En í keltnesku málun- um sótti hann fyrirlestra hjá hinum nafntogaða vísindamanni prófessor (síðar Sir) John Rhys, og tókst þá með þeim sú alúðarvinátta sem hélzt meðan báðir lifðu. Auk alls þessa las hann til verðlaunaprófs í Literae Humaniores (þ. e. grískum og latneskum bókmentum og sögu ásamt heimspeki fornri og nýrri). Tók hann ágætiseinkunn við bæði prófin (1890 og 1892), kennurum sínum til mikils hugarléttis, því þeir höfðu ávalt óttast að hann hefði of mörg járn í eldinum til þess að vel gæti farið. Á þessum árum birtist hin fyrsta ritgerð hans í Scottish Review og var hún um gelsk söguljóð, en í þetta ágæta tíma- rit skrifaði hann síðar fjölda ritgerða um keltnesk, skozk og íslenzk efni. Er ekki unt að telja hér upp þessar ritgerðir eða skýra nánar frá þeim. Þó er einni þeirra þannig varið að með engu móti má ganga fram hjá henni. Hún birtist.í októberheftinu 1896 (sbr. Eimr. 1897, bls. 159) og nefnist The Poetry of the Skalds. Rekur höfundurinn þar mjög skýr- lega eðli og einkenni hinna svonefndu skáldakvæða og sýnir fneð tilvitnunum hve misjafnlega sá skáldskapur hafi verið metinn og dæmdur, og ver hann jafnt fyrir oflofi sem níði. Þá heldur hann og því fram, sem ekki mun verða hrakið, að því aðeins geti þýðingar á forníslenzkum skáldskap gefið sæmilega hugmynd um frumtextann, að öllum hinum upp-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.