Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1927, Page 104

Eimreiðin - 01.04.1927, Page 104
200 RITSJÁ EIMRElÐIfí Einkum er Diljá vel lýst. í sorg og í gleði, í meðlæti og mótlæti er hú” sönn ímynd konunnar, sem fórnar öllu á altari tilfinninga sinna, elskar og þjáist fyrir ástina — og elskar æ því meir. Steinn Elliði segir á ein- um stað í bókinni, að konan sé skækja (hann á við eiginkonuna). Þetta er öfugmæli. Jafnvel skækjan er kona, hefur möguleika til að vera ást- mey og móðir, og það er hennar mesta hrós og Iyftir henni upp í æðra veldi. Eg veit ekkert æðra hér í heimi en þá konuást, sem flýgur dýrð- leg yfir fen spillingarinnar og yfirstígur synd og dauða og gröf — nema ef vera skyldi afkvæmi konunnar, barnið. — Bókin er sumsfaðar rituð af talsverðri snild. Höf. er skáld og getur sett sig í annara spor. Stíllinn glitrar víða af andríki og smellnum lík- ingum, þótt hann Iendi að vísu stundum í smekkleysum. Sagan um Ljón- harð Pípín er til dæmis ágæt. Og sumstaðar hefur höf. sig til hæða hressandi gagnrýni á söguhetjunni, t. d. á bls. 58: „En meinlætamannin- um varð ekki að vegi að Iyfta henni upp í faðm sinn til að kyssa hana á augun“. En ræður Steins Elliða og hugleiðingar eru stundum helzt til langar, og manni er sagt meira en sýnt af snild hans og ágæfi. Einn stór blettur er á bókinni; það eru tilvitnanirnar á útlendum mál- um. Þær bera vott um oflátungsskap, og hefði höf. getað komist hjá að misbjóða íslenzkum almenningi, ef hann hefði látið svo Iítið að þýða þær á íslenzku neðanmáls. Nú eru þær eins og dauðir blettir á lifandi líkama fslenzkunnar. En hugsunarsemi höf. náði ekki svo Iangt. Enn fremur er „rithöfundatalið" í bókinni hálf-ósmekklegt, þótt það beri að vísu vott um mikla lesningu. — „Vefarinn mikli frá Kasmír" er all-mikið skáldverk, en ekki hent ó- þroskuðum sálum, sem gleypa alt ótuggið. Það þarf þroska til að hafa gagn af þeirri bók, greiningu góðs og ils, en ekki verður það lagt höf. til lasts. Hann hefur með þessari bók tekið sér sæti meðal fremstu rithöf- unda íslenzkra, og sjálfsagt á hann eftir að þroskast mjög enn. Jakob Jóh. Smári. Davíð Stefánsson frá Fagraskógi: MUNKARNIR Á MÖÐRUVÖLL- UM. Leikrit í þrem þáttum. Reykjavík. Prentsmiðjan Acta. 1926. Davíð Stefánsson er þegar orðinn kunnur fyrir ljóð sín, sem virðast njóta all-mikillar alþýðuhylli, enda eru þau auðskilin og lipur og mjög við almennings hæfi — ekki djúphugsuð, en víða smellin og yfirleitt mjög lagleg. En þetta er fyrsta tilraun hans við leikritaskáldskap, og má segja að vel hafi fekizt fyrir byrjanda. Leikritið er mjög læsilegt og fer all-vel
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.