Eimreiðin - 01.07.1929, Síða 61
ElMREIÐIN
HVAÐ SKILUR?
245
stjórnarinnar og flokks síns, að ríkisstjórnin og Framsóknar-
flokkurinn vilji segja upp satnbandslagasamningnum meðal
annars til þess, að »vér tökum utanríkismálin að fullu í vorar
hendur«. Og Héðinn Valdimarsson, fulltrúi ]afnaðarmanna,
Se9ist í svari sínu geta fyrir hönd flokksmanna sinna fallist á
svör forsætisráðherra, »það sem þau nái«. Hið eina sem segja
mætti, að felist í stefnuskrá hins nýja flokks fram yfir það,
Sein fram kemur í svörunum við fyrirspurninni 24. febrúar
1928, er afstaðan til ákvæðis 6. gr. sambandslaganna um
lafnrétti Dana við oss hér á íslandi. Sjálfstæðisflokkurinn nýi
segist vilja vinna að því, að ísland taki »gæði landsins til af-
nota fyrir landsmenn eina«. í svörum sínum við fyrirspurn
Sigurðar Eggerz komast þeir forsætisráðherra og Héðinn
^aldimarsson ekki inn á spurninguna um jafnréttið, en eins
°9 Sakir standa er ekki nein ástæða til að ætla annað en að
^e'r og flokkar þeirra séu ásamt sjálfstæðisflokknum nýja
sammála um það, að »gæði landsins eigi að vera til afnota
Vr'r landsmenn eina«.
Er þá nokkuð sem skilur foringja flokkanna nú í sjálf-
^taðismálinu fremur en á alþingi 1928? Ýmsir hafa litið svo
a; aö fleygur nokkur hafi komist inn í málið með fjárfram-
°9um danskra Jafnaðarmanna til flokksbræðra sinna á ís-
3ndi. Bæði Sigurður Eggerz og Magnús Guðmundsson nefna
L,eSS* ^arfr3mlög í ræðum sínum á þingi 24. febrúar 1928. í
°oum og á mannfundum hefur Jafnaðarmannaflokknum hvað
annað verið núið því um nasir, að hann nyti styrks frá
önum til pólitískrar starfsemi hér á landi. Orðtak Filippusar
akedoníukonungs — enginn borgarmúr er svo hár, að asni
Yþaður gulli komist ekki yfir hann — verður mörgum ríkt í
u9a, þegar rætt er um öryggið gagnvart útlenda valdinu.
Jafnaðarmenn hafa borið íhaldsflokknum hið sama á brýn,
f* hanri hafi notið styrks frá Dönum til pólitískrar starfsemi
á landi. Enn er óupplýst til hlítar, hve mikill fótur er
Vrir t>essum áburði hinna tveggja flokka hvorn á annan. Það
1 að vera fyrsta skylda hvors um sig, að gefa þjóðinni ná-
vaemar og sannar upplýsingar um þessi mál, eins og í þeim
‘9gur. Og hafi slíkt komið fyrir, að íslenzkur stjórnmálaflokk-
Ur hafi þegið fé af Dönum til þess að verja í pólitíska starf-