Eimreiðin - 01.07.1929, Síða 67
EIMREIÐIN
Rasputin.
Eiður S. Kvaran.
I.
Ein af merkileguslu sögulegu per-
sónum síðari tíma er rússneski munk-
urinn Rasputin. Er allur æfiferill
hans hinn furðulegasti, og sögurnar,
sem af honum ganga, næsta ótrúleg-
ar, en verða þó ekki rengdar. Fjöldi
fólks af háum og lágum stigum tign-
aði hann og trúði á hann sem heil-
agan mann. Einkum náði hann þó
ótrúlega miklu valdi yfir konum. Fór
því þó fjarri, að Rasputin væri gædd-
ur þeim eiginleikum, er alment þykja
skilyrði fyrir því að vinna hylli kvenna.
, Andlitið var ófrítt og alsett djúpum
rukkum. Hár hafði hann langt og lubbalegt og jafnan ógreitt;
ennið var hátt og hvelft og á því stórt ör eftir meiðsli. Nefið
Var s*órt, breitt og bólugrafið, augun lítil og ljósblá að lit,
Voru þ^u sem mögnuð einhverjum leyndardómsfullum mætti,
etl með þeim dró hann að sér fjölda fólks, eins og segull
s a 'ð. Skegg hafði hann mikið, jarpt að lit og illa hirt. ]afn-
j*!1 skein þó góðlegur svipur út úr andlitinu, og altaf var hann
'nt1 alúðlegasti í viðmóti, við hvern sem hann talaði. Hend-
Urnar voru stórar og beinamiklar, en vel lagaðar. Rasputin
Var kar niaður vexti og heldur grannlegur. Öll framkoma
ns var fremur ruddaleg, og altaf talaði hann óvandað al-
"'ugamál. —
mikils máttu sín áhrif Rasputins á stórmenni ríkisins,
það' °^um elnum fekk kann vilja sínum framgengt. Er
að líkindum eins dæmi í sögunni, að óbreyttur almúga-
Ur. sem Rasputin var alla æfi, hafi hafist til slíks gengis
°9 allað sér slíkra áhrifa.