Eimreiðin - 01.07.1929, Page 89
EIMREIÐIN
GRASAFERÐIR
273
Þegar leiðangursfólkið kom á það svæði, sem vænlegast
t>ótti til grasatekju, var farið að svipast um efiir góðum tjald-
stað. Helzt var valinn sléttur bali, graslaut eða hvammur
m°t suðri. Réð miklu um tjaldstað, að vatn væri auðfengið
”ærri, annaðhvort í læk, lind eða vatni, því ekki var hægt að
Komast af án vatns til kaffihitunar, blöndugerðar, eða annara
nauðsynja.
Þegar búið var að velja tjaldstaðinn, var tekið niður af flutn-
mgahestunum, og hrossum öllum komið á haga um stund.
Voru nú mörg störf fyrir höndum. Sumir reistu tjaldið.
^orir fóru að koma fyrir farangrinum, og leit matseljan eftir,
alt nestið væri sett á sem beztan stað. Mjólkurílát og sýru-
ylki voru sett í vatn, ef tök voru á, eða í aðra kalda staði,
SVo það geymdist sem bezt. Sumir fóru í sprekamó til að
Safna eldiviði til næsta dags. Og enn aðrir rifu hrís, lyng eða
m°sa og báru heim í tjaldið og jöfnuðu því sem bezt með-
am hliðum tjaldsins að innanverðu, þar sem hvílast átti á
a9inn. Enn fremur þurfti að búa til hlóðir, svo hægt væri
a hita sér hressingu eftir mat, ef þörf gerðist.
^egar allur undirbúningur var um garð genginn, settust
menn að snæðingi, og tóku sér svo hvíld á eftir áður en
Vfsta grasaferðin væri hafin. Að þeirri hvíld lokinni mun
mmrekstrarmaðurinn hafa tekið hestana og rekið þá heim-
mis, því ekki þótti gerlegt að hafa þá uppi á heiðum svo
d°9um skifti.
^egar búið var að koma öllu í röð og reglu og búið að
matast og hvílast, var búist á stað í grasamóinn. Var venja
a Wrja að kvöldlagi eða snemma nætur. Tók nú hver sinn
Srasapoka, eða belg, og grasaband. Nú var brolið upp á pok-
fnn tæplega til hálfs, og báðum endum grasabandsins hnýtt
mnanvert í pokahliðina tvöfalda, þannig að nokkurt bil var
f mi'Ii endanna, en þó ekki pokabreiddin. Þegar búið var að
. s a handið þannig, var lykkjunum brugðið upp á vinstri öxl-
ag3’ -°^ ^ékk pokinn þá niður með síðunni. Þegar farið var
|'na, var vinstri höndinni stungið niður í pokaopið og því
a dið sundur með því að beygja olnbogann út á við, frá síð-
nnni. Myndaðist þá þríhyrnt op, sem þægilegt var að stinga
æ9n hendinni niður í með grösunum í. Á þenna hátt var