Eimreiðin - 01.07.1929, Síða 102
286
SÁLRÆNAR RANNSÓKNIR
eimreiðin
hafl svik á fundunum. En honum tókst ekki að sverta mann-
orð frú Crandon eða sanna á hana svik. Crandon læknir, dr.
Carrington og ]. Malcolm Bird, sem var ritari nefndarinnar,
vörðu hana í blöðunum, og hinir nefndarmennirnir þrír, pró-
fessor McDougall, dr. Comstock og’ dr. Walter F. Prince,
neituðu því, að nokkur svik hefðu á hana sannast, þó að þeir
teldu fyrirbrigðin ekki nægilega sönnuð til þess, að þeir
treystu sér til að dæma henni verðlaunin. Annars virðast
sumir nefndarmanna hafa verið harla ósáttir og furðu skiln-
ingssljóir á skilyrði þau, sem sálræn fyrirbrigði lúta, enda
kvað dr. Crandon svo að orði, að nefndin hefði að réttu lagi
átt að heita »Félagið til tálmunar sálrænum fyrirbrigðum4-
Það þarf ekki annað en Iesa um afskifti Houdinis af Margery,
eins og frá þeim er skýrt í fyrnefndri æfisögu hans, til þess
að ganga úr skugga um sannindi þessa heitis.
3. Rannsóknarnefnd Harvard-háskóla árið 1925. Það var í
júnímánuði 1925, að fjórir aðstoðarkennarar og einn prófessor-
anna við Harvard-háskóla báðu um leyfi til að halda fundi með
Margery innan háskólans. Þeir settu jafnframt upp, að þeir
fengju sjálfir að ráða öllum skilyrðum á fundunum. Crandon
læknir leyfði þetta að tvennu áskyldu: í fyrsta lagi,
fregnriti yrði látinn skrá alt jafnóðum og það gerðist á fund-
unum, skýrsla sú yrði staðfest með undirskrift fundarmanna
og afhent miðlinum fyrir næsta fund, — í öðru lagi, að kaemi
upp grunur um svik, skyldi undir eins geta þess í fundar-
skýrslunni, ella skyldi grunurinn teljast ástæðulaus. Þessi tvö
skilyrði hefur Crandon læknir jafnan sett fyrir þátttöku 1
fundunum með Margery, og gengu Harvard-menn fúslega að
þeim. Átta fundir voru haldnir og tókust ágætlega. En þótt
fundirnir væru ekki haldnir í nafni háskólans opinberlega.
gátu menn þó Iitið svo á, að nafn háskólans kæmi sem trySS'
ing fyrir áreiðanleik þeirra. Það var meira en þeir háu herr-
ar við Harvard þoldu. Færi skólinn að taka á sig nokkra
ábyrgð á fyrirbrigðunum, gat það orðið hættulegt áliti hans 1
augum amerískra borgara. Herrarnir frá Harvard fóru
bera Margery svikabrigslum í blöðunum þvert ofan í sínar
eigin fundarskýrslur. Þetta var að þeirra áliti eina leiðin ti
þess að halda heiðri sínum og skólans óskertum. Fundar-