Eimreiðin - 01.07.1929, Síða 134
318
Á FJÖLLUM
eimreiðin
falla sitt til hverrar áttar. Um hádegið veður maður snjó í
miðjan kálfa. Nú ættu skíði að vera komin! Kvöldið er kyH;
Maður aðeins heyrir skrjáfið í störinni og tíst óðinshananna á
lauginni. Svanurinn syngur ekki, því nú er hann í sárum. Vfir
Kerlingum í Vatnajökli kvíslast austanklósigi upp á háloftið
og spáir austanátt með morgninum, Grána litla er orðin drag-
hölt og gengur á þrem fótum. Það er mesti ærslabelgurinn j
förinni, bítur og slær á báða bóga og ryðst altaf þversum á
baggahestana til að stríða þeim. Nú kemur hún mjög svo
aumingjaleg og réttir hátt upp veiku löppina til að láta kreista
úr ígerðinni og bera á sig kreólin. Hún er steinhætt að bíta,
stendur bara og starir á veiku löppina. Það er afráðið að
»liggja< enn nokkra daga. Uppi í Illahrauni eru stórfengileð
gil, fossar í Ðlautukvísl, og í Kerlingafjöllum einhverjir stærstu
brennisteinshverir á Islandi.
Það er óþarfi að lýsa leiðinni frá Nauthaga niður í Þjórs-
árdal. Maður getur stiklað á örnefnum: Miklakvísl, Dlauta-
kvísl, með eyrar þaktar af eyrarrós, Sóleyjahöfði við Þjórsa
— þar er vað á ánni, en vantar ferju — Miklilækur, Kisa-
Eyvasýki, Norðlingaalda, Dalsá, Gljúfurlaut og ótal ver fuh
af gæsum. Þar er Starkaðsver. Við komum að Starkaðssteim-
sem getið er um í vísunni:
— — Slarkaðs bein
við stóran stein
staðið hafa lengi.---
í Skúmstungum er gott að slá tjöldum, því hvergi er Hekla
fegurri en þaðan að sjá. Bezt er að teygja tímann á fjöllum
— á morgun komum við í bygð — einn fegursta dal laudsins-
sjáum Gjána, Háafoss, Bláfellsháls, Hjálp og Di-mon (tvö fjöj*';
Síðasta nóttin á fjöllum er altaf viðburður. Þá minnist Þu
þess, að heima bíða hálfunnin störf. Þá grafast upp gamlar
hugsjónir, sem þú sökum hugleysis og leti hefur borið út, pS
jafnframt gremja yfir því að eiga ekki sjálfráðan mátt. Pu
grefur fyrir veilurnar í skapgerð þinni, hefur ef til vill ást®ul1
til að skammast þín fyrir lítilmótlegar hugsanir og smásálar'
skap — leitar eftir því, sem er frjálsborið, reynir að hlúa a
því eftir beztu getu og lífga þá neista, sem fallnir eruj
fölsl
°S
fyrir
og jöklar.
iva. Loks sofnar þú með það fyrir augum að verða &eu
nýtari íslendingur og leitar í draumheimum að ástæðujjl
mismun lands og þjóðar. En upp yfir alt gnæfa fl°