Eimreiðin - 01.07.1929, Side 167
EIMREIÐIN
FLÓTTINN ÚR KVFNNABÚRINU
351
eru bæði dag og nótt á sveimi hér í kringum húsið, ef vera
Wnni, að þeir kæmu auga á þig. Þeir mundu ekki vera lengi
a<5 segja frá því heima fyrir, að þeir hefðu séð hvítu konuna.
Það væri smán fyrir alla ætt mína, ef slíkt kæmi fyrir!
Smámsaman reyndi ég að gera íbúð okkar vistlegri. Fyrsta
Verl< mitt var að þrífa til, en það var hægra sagt en gert.
Eg var þegar farin að frétta það utan að mér, að ég væri
mesta eyðslukló, sem ekki tæki neitt tillit til efnahags
mannsins míns og hugsaði ekki um annað en óhóf, því á
hverjum morgni léti ég sækja tvær stórar krukkur af vatni
M þess eins að þvo mér. Ég gat aldrei fengið þjónustufólk
til að sætta sig við þetta. Vatnsberarnir vissu ekki hvað-
an á sig stóð veðrið, og á hverjum morgni varð ég að end-
UrnÝja þessa skipun mína við þá. Hvernig átti þeim að geta
dottið í hug, að nokkur manneskja þvæði sér svona oft!
Harðastan bardaga átti ég þó við veggjalúsina í herbergj-
Urn okkar, einkum í rúmunum.
Tvær tegundir af veggjalús var þarna við að fást. Önnur
þeirra var stór, bólgnaði hörundið mjög upp undan biti henn-
ar °3 olli miklum sársauka. Hin minni var álíka og þær, sem
^er þekkjast. Á einni einustu nótt drap ég á annað hundrað
þessum meinvættum. Ég varð altaf að vera að rífa í hár
og um mig alla. Ekki var ásóknin minni á þjónustu-
fólkið. Ég náði í smyrsl, sem ég hafði verið svo hyggin að
taka með mér frá Evrópu, og reyndi að verja mig og Asim
meÖ þeim. Ég lét aldrei fatnað okkar fara saman við fatnað
hinna. í hvert sinn sem við komum úr heimsókn leituðum við
Vandlega í fötunum. Þó tókst ekki að framfylgja þessari þrifn-
a<5arráðstöfun til hlítar, því það var ógerningur að fá kven-
fólkið til þess að viðhafa hreinlæti. Það skildi alls ekki hvað
tyfir mér vakti. Það var ekki einu sinni hægt að vinna þær
með gjöfum til þess. Þó að Iýsnar spókuðu sig á andlitinu á
þeim, þá var svo sem ekki verið að drepa þær, heldur voru
lýsnar teknar með stökustu varúð og látnar detta á jörðina
eða lagðar gætilega á gólfið. Dýraverndun Afgana virtist ekki
na lengra en til veggjalúsanna.