Eimreiðin - 01.07.1937, Síða 13
EIMREIÐIN
Á HVAMMSHEIÐI
245
ekki í minna lagi, að ég held — og mér hefur sýnst þetta, þrátt
iyrir það, sem ég sagði áðan um valdtöku gleðinnar, að úr
frjálsræði viljans verði oft heldur lítið i reyndinni. Og einkum
er það ýmislegt, er fyrir sjálfan mig hefur komið, sem veldur
Pvi, að ég trúi ekki mikið, fremur en þú, á „fríviljann“.“
Eg hef tekið eftir því, að menn eru oft opinskárri við vín en
eila, og kom nú til hugar, að líklega mundi Brandur hafa frá
einhverju því að segja, er vel væri þess vert, að á væri hlýtt
og mundi liklega ekki halda fast á því í þetta sinn. „Geturðu
sagt mér eitthvað af því?“ spurði ég.
»Eg get það og get það ekki. En það, sem ég á einkum við,
er þetta: Mig órar stundum fyrir því, sem ekki er komið fram;
einkum því, sem ilt er — og get samt ekki spornað við því,
Þó ég vilji. Trúirðu þessu?“
>»Já. Ég trúi því, því ég veit að það er til. Annars mundi ég
ekki trúa því, því mér sýnist það ósamrýmanlegt við flesta
^iannlega þeklcingu. Viltu segja mér eitthvað af þinni reynslu?“
»Eg er ekki vanur að tala um þetta, því ég veit að venjulega
er á það litið sem heilaspuna og jafnvel sem „delirium“. Svo
er líka það, að þetta kemur oft sein skyndilegt, ógreinilegt
kugboð, sem ég fulltreysti sjaldnast sjálfur fyr en fram er
konnð, vil því sem minst á það minnast og get eðlilega — eftir
lengri eða skemri tíma — engar fullar sönnur á það fært.
Stundum legst hið ókomna í mig eins og langvinnur beygur
V,Ó eitthvað, sem ég veit ekki —• að minsta kosti ekki til fulls
hvað er. Stundum koma bendingar um það í draumi, og þá
°Itast í líkingum, sem ekki verða fullráðnar fyr en það kemur
tram, sem þær stefna að. Til er það að vísu, að mig dreymir
8reinilega --- líkingalaust — fyrir því, sem ekki er komið
tram. En þá eru það oftast ómerkilegir atburðir."
»Hvað hefur þig dreymt merkilegast, að þér finst.?“
»Því, sem mig hefur dreymt merkilegast, eða ég hugsa oft-
asl uni, að minsta kosti, er svo farið, að mér er erl'itt um að
Segja það og hef aldrei á það minst við nokkurn mann, hingað
hk En þó hefur mig stundum langað til þess — og þá helzt við
einhvern þann, sem mér er lítið kunnugur, hvernig sem á þvi
stendur. — Jæja. Ég hef heyrt eða lesið sögu — og fleiri en
eina — um það, að unga mey hafi dreymt mannsefnið sitt,