Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1937, Qupperneq 14

Eimreiðin - 01.07.1937, Qupperneq 14
246 A HVAMMSHEIÐI EIMREIÐIN löngu áður en hún sá það í vöku, dreymt það svo ljóst, að hún þekti það jafnskjótt og maðurinn kom raunverulega til sög- unnar. Ekki veit ég hvort þelta er satt, og altaf má ráð fyrir því gera, að draummynd breytist með líðandi tíð — nema draumurinn sé því einkennilegri. Ekki dreymdi mig konuefni mitt áður en ég sá það í vöku. En nóttina áður en við giftumst, drevmdi mig draum, sem ég ætla nú að segja. Ég vissi — í svefninum — að giftingin stóð til og var staddur, ásamt konu- efninu, presti og mörgu fólki öðru, í stofu, er vissi út að hlaði á gömlu stórbýli — þó ekki kirkjustað — þegar draumurinn hófst. í stofunni var uppbúið rúm, sem mér þótti vera hjóna- rúmið okkar tilvonandi. Fólk var í þann veginn að leggja af stað til kirkjunnar, þar sem hjónavígslan átti fram að fara. Ég stóð við rúmið. Fólkið tók að ryðjast út úr stofunni með allmiklum hraða, og varð ég Jiá fyrir árekstri af einhverjum, sem olli því að ég hrasaði, rétti fram hönd til að styðja mig, rak hana í mitt rúmið, þ. e. rúmfötin, og heyrðist bresta í ein- hverju, líkt og gler væri fyrir. Ég staldraði við í stofunni, til Jiess að aðgæta, Jiegar fólkið væri farið úr henni, hvað að hefði orðið, og fann þá, í rúminu, mikið af glerbrotum. Fór svo að hreinsa Jiau burtu, en fanst altaf eitthvað vera eftir og tafðist því þarna lengi. A meðan Jiessu fór fram, heyrði ég sagt úti á hlaðinu, þar sem brúðkaupsfólkið var að leggja af stað: „Láttu Sigríði vera; Brandur á að leiða hana.“ Og sú Sigríður vissi ég að var konuefnið, mitt konuefni — og að hún var að leggja af stað með hinu fólkinu. Ég keptist við að hreinsa rúmið. Og er ég loksins kom út, var fólkið, brúðkaupsfólkið og konuel'nið, komið alllangt í burtu. Ég fór að hlaupa á eftir því — og varð ]iá svo undarlega lémagna, að mér miðaði lítið. Altaf dró sundur, unz fólkið hvarf með öllu; Sigríður hvarf mér með öllu, Jiá vaknaði ég. Jæja, við giftumst nú samt hinn fyrirhugaða dag'. En við hjónin fundum fljótt eftir giftinguna, að við áttum ekki svo vel saman sem skyldi. Henni þótti ég vera drykkfeldur og slæpingsgjarn, mér þótti hún þurlynd og nöldrunarsöm. — Slæpingur var ég nú reyndar ekki að náttúrufari. En það var satt, að mér þótti gott að fá mér í staupi, á ferðalagi, og það kom fyrir, að ég lá í rúminu af eftirköstum þess, þegar ég
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.