Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1937, Side 76

Eimreiðin - 01.07.1937, Side 76
308 MENNIRNIR OG STEINNINN EIMKEIÐIN Ég lagði ætíð leið mína suður með Tjörninni og suður Mela. Mér fanst þetta friðsæl og fögur leið og stutt út úr bæn- um. Ég var altaf í ákaflega glöðu skapi, eins og ungir menn eru, sérstaklega þegar þeir eru nýkomnir úr dauðahættu til hins þráða og fagra lífs. Það var vor, bæði í náttúrunni og í mér sjálfum. Nokkuð sunnarlega á Melunum var stór steinn. Hann lá þar ofan á mölinni, hér um bil jafn á allar hliðar og einkar þægi- legt sæti, sléttur að ofan og mátulega hár. Ég tók eftir því, nokkra morgna, að sami maðurinn sat á steini þessum, klukk- an um sjö, þegar ég kom suður eftir. Það var roslcinn maður, auðsjáanlega embættismaður eða af því taginu; hann var í svörtum yfirfrakka með harðan hatt og vel klæddur yfir höfuð að tala, gekk við silfurbúinn staf. Hann var valdsmannsíegur á svip, nærri því fattur í baki, stuttstígur og allur hinn virðu- legasti í fasi. Svo var það einn morgun, að hann var ekki kominn, er ég kom suður eftir. Veðrið var, að vanda, liið yndislegasta, sól lcomin hátt á loft, ilmur jarðar og gróðrar í lofti og fugla- söngur í eyrum. Ég var í ákaflega léttu skapi, eins og öll þessi dýrð og gæði lífsins hefðu svifið mér til höfuðs. Ég sá til míns gamla, virðulega vinar, þar sem hann kom, hægt og sett, sígandi suður melana, og stefndi á steininn. — Og ég settist á steininn. —• Aldrei hafði ég orðið þess var, að hann tæki eftir mér, er ég hafði mætt honum, undanfarna morgna. Nú gaf hann mér auga, er hann nálgaðist, og göngulagið hreyttist örlítið, eins og eitthvert hik væri á honum. Það var nærri því eins og hann ætlaði að nema staðar og ávarpa mig, en ég var eklci í efa um það, að hann var að hugsa um það. — Þó varð ekki af því. Hann gekk fram hjá mér og steininum, sneri aftur litlu sunnar og gekk nú fram hjá mér, án þess að líta við mér, en ég sá að hann var í afarþungu skapi. Svo rölti hann niður í bæ. Morguninn eftir var enn þá sama blíðan. Og alt fór eins. Ég var fyr á ferli en áður og var seztur á steininn, er hinn virðulegi náungi minn kom. — En nú nam hann staðar fyrir framan mig, þar sem ég' sat, og ávarpaði mig. „Ungi maður,“ sagði hann þurlega. „Ég sé að þér hafið, í
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.