Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1937, Page 78

Eimreiðin - 01.07.1937, Page 78
310 MENNIRNIR OG STEINNINN eimreiðin anda, sem nú er að leggja heiminn undir sig. — En — ætlið þér ekki að viðurkenna rétt minn til steinsins?“ „Nei,“ sagði ég, „þér hafið hvorki lagalegan né siðferðis- legan rétt til þess að sitja á þessum góða steini, fremur en ég- Enginn hefur flutt steininn hingað, svo vitanlegt sé, það eru atvikin sem hafa hagað því svo til, að hann er hér.“ „Þér munuð hafa á réttu að standa,“ sagði hann dræmt, „að lagalegan rétt hef ég ekki til steinsins. En ég hef þó ólíkt meiri rétt til hans en þér. Fyrst og fremst er ég eldri en þér og borgari hér í bænum. Auk þess hef ég notað hann á undan yður og þar með helgað mér afnot hans. Og loks veit ég miklu meira um stein þennan en ég geri ráð fyrir að þér gerið. Eg veit hve stór hann er, og hér um bil hversu þungur hann er, þegar tillit er tekið til þess efnis, sem í honurn er. Vitið þér kannske þetta? Nei. — Þegar á alt er litið er það ég, en ekki þér, sem hef rétt til þess að hvíla mig á þessum stað.“ Ég stóð nú upp. — „Jæja,“ sagði ég. „Þér hafið nú gert mér mikið ónæði og óþægindi, og ég nenni ekki að vera hér lengur í dag. Þér hafið engan rétt til þessa steins frekar en hver annar; alt sem þér hafið sagt um það er bull. Ég fer nú héðan, en áskil mér fullan rétt til þess að nota þennan góða stein hvenær sem mér þykir það þægilegt og enginn annar situr á honum. Verið þér nú sælir“ — ég rétti honum höndina, alúðlega eftir því sem ég bezt gat, því ég var enn þá í ágætis-skapi. En hann tók ekki kveðju minni, andvarpaði og settist á steininn. Daginn eftir var ég á sama tíma á sama stað. Ivunningi minn var þá kominn á undan mér, sat á steininum og leit ekki við mér. Ég tók ofan, bauð honum góðan daginn, glaðlega, en hann lét sem hann sæi mig ekki. Hann sat teinréttur á steininum, hafði stafinn á milli hnjánna og studdi báðum höndunum á hann og horfði út í bláinn. „Gott er blessað veðrið,“ sagði ég. Hann svaraði mér eltki, og var sem hann vissi ekki af neinu nálægt sér nema vormorgninum og veðurblíðunni. „Ég mundi ekki mega hiðja yður að lofa mér að setjast á
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.