Eimreiðin - 01.07.1937, Síða 97
EIMREIÐIN
HRIKALEG ÖRLÖG 329
Ég lét tauminn falla úr hendi mér og hristi höfuðið. „Ég
hef gefið drengskaparorð mitt,“ hrópaði ég'.
„Gefið honum það!“ hrópaði hann með takmarkalausri
fyrirlitningu.
>.Hann hefur heitir því, að þið skulið halda lifinu.“
..Við eigum sjálfir lif okkar. Og viljið þér þá, Santierra,
ráða okkur til að gefa okkur á vald þessum þorpara?“
.,Nei,“ hrópaði ég, „en hann vill heimta eiginkonu sína og
harn aftur, og hann getur gert vkkur vatnslausa.“
„Það mundi þá fyrst og fremst koma niður á henni. Það
getið þið sagt honum. En heyrið nú — þetta er tóm vitleysa.
Við gerum iitrás og tökum yður til fanga.“
„Þið takið mig ekki lifandi,“ sagði ég ákveðinn.
„Heimskingi!“
„í guðanna bænum,“ hélt ég áfram og bar ört á, „Ijúkið
eþki upp hliðinu.“ Ég benti á hinn mikla fjölda af Indíánum
peneleos, sem þöktu vatnsbakkana. Ég hafði aldrei séð svona
niarga rauðskinna saman komna á einn stað. Spjót þeirra
'irtust vera eins þétt og gras. Hásar raddir þeirra runnu sam-
a« í eitt ógreinilegt, dunandi hljóð, sem minti á þungan brim-
nið.
Pajol vinur minn bölvaði með sjálfum sér. „Nú jæja —
farið þér þá norður og niður,“ þrumaði hann reiðilega.
En undir eins og ég sneri hestinum við, iðraði hann þess,
Sem hann hafði sagt, því ég heyrði hann hrópa til manna sinna:
„Skjótið hestinn strax niður undir honum, áður en hann
sleppur.“
Hann hafði góðar skyttur meðal sinna manna. Tveim skot-
uni var hleypt af. Hesturinn tók viðbragð, reikaði, féll og lá
grafkyr, eins og lostinn eldingu. Ég kom fótunum úr ístöðun-
11 ni 0g valt af honum, en ég gerði enga tilraun til að standa
llPp. Þeir þorðu heldur ekki að koma út og draga mig inn i
virkið. Indíánagrúinn tók nú að nálgast virkið. Þeir þeystu
H'ani í flokkum og stigu svo af baki áður en þeir komu í skot-
uiál, köstuðu skinnkuflunum og gengu naktir í bardagann,
stöppuðu allir í jörðina og hrópuðu í takt. Röð af eldblossum
hrá fyrir í þrígang meðfram forhlið vígisins, en skothrið þessi
hufði engin áhrif á Indíánana. Þeir ruddust alveg upp að girð-