Eimreiðin - 01.07.1943, Side 42
218
HÓPKENNSLA EÐA EINSTAIvLINGSKENNSLA
EIMREIWN
lil eru nú orðið í næstum hverju landi, þ. e. skólaskylda og
vinnulöggjöf.
Þá var það, að hópkennslan komst á. Mönnum ofbauð fyrst
kostnaðurinn við að koma upp skólum og laiina kennurum.
Var reynt að draga úr kostnaðinum með því að ætla hverjum
kennara sem flesta nemendur. Oft voru þeir um hundrað og
þar yfir. Kennslan stefndi að því að steypa alla í saina móti,
enda var þá oft sagt, að allir væru bornir jafnir. Tilgangurinn
var að veita mönnum þekkingu og uppfræðslu í trúfræði.
Heilbrigði, sem nú er fyrsta krafa uppeldisfræðinga, var
ekki nefnd. Hið fagurfræðilega og skapandi uppeldi þekktist
ekki, það, að kenna að virða, meta og njóta hvers konar feg-
urðar í náttúrunni, listaverkum og bókmenntum, og að frani-
leiða fegurð. Siðgæðisuppeldi var skoðað sem fylgifiskur trú-
fræðinnar og félagslegt uppeldi hluti af uppfræðslunni.
Þegar menn tóku svo að athuga sálarlíf barnsins, komust
menn fljótt að því, að ekki voru allir fæddir jafnir. Það var
svo mikið djúp staðfest milli einstaklinga, að það náði engn
átt að ætla öllum sama námið og gera sömu kröfur til allra.
Eftir því sem próf urðu fullkomnari, bæði vitpróf og þekk-
ingarpróf, sáu menn Ijósar þessa staðreynd. Þá hugkvæmdist
mönnum, að hægt væri að gera hópana jafnari með því að
flokka saman þau börn, sem voru svipuð að viti og þekkingu-
Komu nú prófin í góðar þarfir við þessa flokkun. Var nU
mikið talað um samræmá hópa. Sá hængur var þó á þessu.
að óhægt var um flokkun, nema þar sem allmikill fjöldi barna
var í sama skólanum. Þó var annað verra. Menn komust að
því, að samræmur hópur gat aldrei orðið til. Hversu vel sem
var flokkað eftir viti nemendanna, kom brátt í ljós, að einn
hneigðist að Jiessu og annar að hinu. Þekkingin varð þá mis-
jöfn. Hversu góð og sjálfsögð sem flokkun er í skólum, getur
hún aldrei bætt upp galla hópkennslunnar.
Einstaka manni fór nú að detta í hug, hvort ekki væri hægi
að koma á einstaklingskennslu, þótt einn kennari kenndi stor-
uin lióp barna. Skólakerfið í Gary í Indianaríki er frægt orðið-
Þar hóf hinn mikli skólafrömuður John Dewey starf sitt.
Gary var verksmiðjubær. Var Dewey fengið frelsi til að koinu
þar upp skólakerfi eftir sinum hugmyndum. Skólana nefndi