Eimreiðin - 01.10.1956, Síða 31
SIGURÐUR NORDAL SJÖTUGUR
263
hersi. „Heiðþróaður hverju ráði,“ það er sá, sem vaxið hefur
að heiðri af hverju því, sem hann hefur ráðizt í; stendur
þessi bókmennta- og menningarhersir nútímans á „hlið aðra“
öllum þeim, sem sótt hafa fram í andlegri víking fyrir þjóð
vora. Og þetta minnir mig einmitt á þriðja eftirlætisskáld
Sigurðar. Við hann eiga líka þessar ljóðlínur Einars Bene-
diktssonar:
í glauminum öllum hann geymdi sín sjálfs.
Hann var góðvinum hollur, en laus þó og frjáls.
Svo skal Væringjans lag alla veröld á enda.
Að svo mæltu árna ég vísindamanninum, skáldinu og heim-
spekingnum Sigurði Nordal allra heilla á sjötugsafmæli hans.
Eg óska honum enn margra afreka við að ráða rúnir og leysa
gátur. Megi hann og fjölskylda lians um aldurdaga yndis
njóta.
☆
Setjum svo, að aldrei hefðu verið til á jörðinni neinar blómjurtir. Þá
hefðum við aldrei orðið oss meðvitandi um eitt hið dásamlegasta svið
s;darlífsins. Heill heimur undursamlegra tilfinninga hefði þá sofið eilíf-
um svefni í hjörtum okkar, sem hefðu orðið lirjúfari og eyðilegri en þau
eru nú. ímyndunaraflið hefði skort efni í myndir sínar. Hið óendanlega
syið lita og litbrigða hefði verið okkur að mestu hulið. Dýrlegt samræmið
1 htrófi ljóssins hefði verið okkur óþekkt, því það eru blómin, sem fyrst
l'ala höndlað það og síðan opnað augu okkar fyrir dásemd þess.
Maurice Maeterlinck.
A rneðan eyra mannsins heyrir brimskafla brotna á liöl'um úti, á
'Ueðan augu mannanna fylgja norðurljósum, sem braga yfir þögulum
Júkulbreiðum, á meðan mannshugurinn leitar órafjarlægra hnatta í enda-
lausum geimi — á meðan munu töfrar hins ókunna leiða mannsandann
áfram og upp á við.
Fridtjof Nansen.