Eimreiðin - 01.10.1956, Blaðsíða 37
EF STAÐREYNDIR RÁÐA EKKI . . .
269
ur, heldur staðreyndir, og þær einar —“ heyrið þér það: — „Þær
einar. Ef staðreyndir ráða ekki, livar við stöndum, þá stönd-
um við hvergi, heldur liaungum í lausu lofti, fis sem berst fyrir
hverjum blæ.“
Ég þarf ekki að taka það fram, að ég er hjartanlega sammála
skáldinu, en það man ég, að þá er ég fyrir hálfum öðrum ára-
tug safnaði mér staðreyndum, fannst mér, að þeir væru furðu
margir, sem kynnu því undra vel að hanga í lausu lofti — eða
réttara sagt um suma: á krók kennisetninga og í blóðugum
hrammi harðstjóra. En ef til vill hafa nú komið fram slíkar
staðreyndir, að það nægi til þess að menn iklceðist persónuleik-
anum.
Ekki ég, ekki þér, áheyrendur mínir, ekki afturhaldsöflin á
Élandi, ekki hinir margnefndu sósíalfasistar, ekki hermangar-
arnir í Bandaríkjunum, heldur samábyrgir nánir starfsmenn
hins mikla Stalins og núverandi valdhafar í Ráðstjórnarríkj-
nnum hafa lýst því yfir fyrir öllum heiminum — ég er liérna
með ræðu Krúsjefs —, að stjórn hans hafi ekki verið hið full-
komnasta lýðræði, eins og oss hefur verið tjáð af miklum móði,
heldur eitt hið hörmulegasta blóðveldi, sem sögur fara af, slíkt
forhert, grimmt og siðlaust einræði, að jafnvel þægustu þjón-
<n' einræðisherrans gátu ekki verið óhultir um líf sitt, að allt
gumið um frelsi, jöfnuð, anda friðar og bræðralags hafi ekki
'erið staðreyndir, heldur staðlausir stafir, falsanir staðreynda.
Og atburðir síðustu rnánaða, vikna og daga, allt frá uppreisn
hins kvalda verkalýðs í Poznarn til liinnar grimmilegu árásar á
Ungverjaland, þar sem hinir ungu menntamenn, samtök verka-
'ýðsins og allur almenningur í byggð og borg stóðu samhuga
nm að endurvekja frelsi og lýðræði — allt þetta sannar átak-
anlega og svo Ijóslega, að ekki verður um villzt, að í leppríkj-
um Rússa hefur ríkt hið hörmulegasta ófrelsi og hin frámuna-
'egasta eymd, verkalýðsfélögin verið múlbundin og réttlaus,
1 ettarmorð framin daglega og loks: herir Ráðstjórnaníkjanna
'erið hin loðna loppa, sem haldið hefur þeim vesalingum, er
Pyndaðir hafa verið svipu innlendra illmenna og kúgara. „Ef
''taðreyndir ráða ekki, hvar við stöndum . . sagði hið mikla
skáld.
Ungverjaland flýtur í blóði frelsisunnandi sona og dætra,