Eimreiðin - 01.10.1956, Page 76
308
EIMREIÐIN
hræddur. Það var maður í sókninni okkar, sem liét Philippe;
liann var tekinn fastur fyrir að berja konuna sína. Faðir
Cooney sagðist ætla að hegna honum stranglega, en allt, sem
hann gerði, var að leysa Philippe út úr steininum, og svo
borgaði hann húsaleiguna og matarreikningana fyrir hann í
ofanálag.
„Ég skal strax tala við herra Kennedy,“ sagði systir Agnes.
„Ágætis hugmynd," sagði faðir Cooney með velþóknun í
röddinni.
Skyndilega fannst mér óbragð af kökunni, og ég kom engu
niður. Systir Agnes kvaddi föður Cooney; svo sneri hún sér
að mér og sagði, að hún þyrfti að sjá mig áður en ég faeri
heim. Mér létti, þegar hún var farin. Faðir Cooney gaf rnér
mjólk í glas og aðra sneið af kökunni; langa stund borðuðum
við þegjandi. Þegar ég var búinn með kökuna, rétti ég úr mér
í sætinu og dæsti. Faðir Cooney kveikti í stórum vindli.
„í gærkvöldi var ég að lesa um ævi Páls postula,“ sagði
hann. „Það var framúrskarandi maður.“
Nú kom það. Það átti að vera predikun um Pál postula, og
allir í sókninni voru sammála um, að ræður föður Cooneys
væru leiðinlegri en allt annað.
„Páll postuli sagði: „Sýn mér trú þína af verkunum." Hon-
um nægði ekki orðagjálfur um trú á frelsarann, heldur krafð-
ist hann guðrækni og góðverka. Á þann hátt setti hann trú-
bræðrum sínum fordæmi, og heiðingjunum féllust hendur,
og þeir öðluðust einnig liina sönnu trú.“
„Já, faðir.“
Hann hristi öskuna af vindlinum og hallaði sér fram í sæt-
inu.
„Við skulum segja sem svo, drengur minn: Hvernig mundi
liafa farið á fyrstu döguni hinnar stríðandi kirkju, ef postul-
inn, — í staðinn fyrir að setja fordæmi með góðverkum, hefði
farið um landið og brotið götulampa? Hvaða jarðvegur hefði
þá orðið fyrir kristindóminn?“
„Álls enginn, faðir.“
„Vissulega ekki.“
„En höfðu þeir götuljós í þá daga, laðir?“
„Ef til vill og ef til vill ekki, — en samt sem áður hebn