Eimreiðin - 01.09.1968, Page 41
FÖRUNAUTARNÍR
187
Rúmum mánuði síðar fékk
héraðslæknirinn bréf frá lækni
og gjaldkera heilsuhælisins í
Skotlandi. í bréfunum var skýrt
frá láti Hemings, er borið hafði
að í einmánuði miðjum. Sendi-
bréf, sem Hemingur hafði ný-
fengið frá íslandi, virtist hafa
haft slæm áhrif á heilsu hans.
„Eigi að síður tók hann dauða
sínum með karlmennsku, þessi
hugumstóri, íslenzki Þjóðólfur,“
skrifaði annar þeirra. Ekki hafði
hann eytt eyrisvirði fram yfir
það, er nauðsyn bar til.
Hemingur var grafinn í
skozkri mold. Hann hvílir undir
keltneskum krossi úr basalti, er
vinir hans í heilsuhælinu gáfu
til minningar um hann. Lág-
mynd af Thule er á bautastein-
inum. Frú úr Hálöndum, vist-
kona í heilsuhælinu, gróðursetti
ývið á leiðinu, og kvað hann
mundu standa þar í mörg
hundruð ár og draga úr ein-
manaleik framandi moldar með
sígrænu barrinu.
En hver hlúir að munkahett-
unum, sem fáir vissu hve honum
var annt um og uxu í breiðu fyr-
ir utan svefnhússgluggann hans
á læknissetrinu — og spruttu út í
rauðum loga ástarinnar?
E'inar Guðmundsson.