Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1968, Page 65

Eimreiðin - 01.09.1968, Page 65
grettir ásmundsson 211 betra en nokkrir aðrir gripir eða fémunir, og sannast hér sent löngum áður, að þú hefur verið mér meiri styrktarmaður en nokkur annar. Ásdis: Þó fer þú, sonur, úr föður- garði vanbúnari en eg vildi. Ekki er þó meira fyrir hendi annað en heilræði nokkur, er vel munu nýtast, ef lram er fylgt. Grettir: Hlýða má eg á fræði þín, móðir, en ósýnt er þó, liversu til tekst um afnotin, því jafnan verður hægra að kenna heilræð- in en halda. Ásdís: Vopnum sínum skal maður velli á feti ganga frantar, því óvíst er að vita nær verður á vegum úti geirs og þörf guma. Grettir: Ekki ætla eg svo brátt að skilja við mig vopn það, er þú nú hefur gefið mér, að þeir finni mig vopnlausan, er á mig kunna að leita. Asdis: Ósnjallur maður hvggst muni lifa, ef hann við víg var- ast, en elli gefur honum ekki grið, þótt honum geirar gefi. Grettir: Ekki er mér sá liugur á ellidauða, að eg muni hlífast við að bera hönd fyrir höfuð mér, ef tilefni gefst til. Ásdis: Gangandi skal ei gestur vera of rnjög á einum stað, ljúf- ur verður leiður, ef lengi situr annars fletum á. Grettir: Ekki lofar þetta miklu um reisn og höfðingsskap, en mun þó satt vera, því æ lítur gjöf til gjalda. Ásdis: Þagalt og hugalt skyldi þjóð- arbarn og vígdjarft vera. Glaður og reifur skyldi gumi hver, unz sinn bíður bana. Grettir: Ekki hefur mér hér til verið lagið að halda uppi gam- anmálum við menn, og mun svo enn verða, hafa og fæst orð minnsta ábyrgð. Ásdis: Hrörnar þöll sú, er stendur þorpi á, hlýr að henni börkur né barr, svo er og maður sá, er mangi ann. Hvað skal hann lengi lifa? Grettir: Ekki verður við öllu séð, og verður svo jafnan að vera, sem til er stoínað, þó mun það satt, að rnaður er manns gaman. Ásdís: Hugur einn það veit, er býr hjarta nær, einn er hann sér of sefa. Öng er sótt verri hverjum snotrum manni en sér engu að una. Grettir: Það ætla eg, að þótt margt gangi verr en varir, að þá veit þjóð, ef þrír vita, og er sjálfs höndin hollust. Ásdis: Ósnotur maður hyggur sér alla vera viðhlæjendur vini, en þá það finnur, er á þing kemur, að hann á formælendur fáa. Grettir: Ekki hef ég hér til verið svo auðtrúa né skapdeilinn við aðra rnenn, að eg þurfi þar af að verða ginnungarfifl þeirra. Er og sjálfur leið þú sjálfan þig fornt heilræði. Ásdis: Vini sínum skal maður vin- ur vera. Þeim og þess vin, en óvinar síns skal engi maður vin- ar vinur vera. Grettir: Eigi mun eg svo brátt vin- margur, að ekki verði yfir séð,

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.