Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1968, Page 67

Eimreiðin - 01.09.1968, Page 67
grettir Asmundsson 213 Þórhallur: Á aðfangadag jóla var hann þó miklu verstur um allt það, er til þessa heyrir. Heimti hann með þjósti mat þann, er sízr skyldi, og varð þó svo að vera, sem hann vildi. Jökull: Það kalla eg ódæmi, að húskarl beiti slíkum dólgshætti, og hefur Skafti fengið þér upp- vöðslumann mikinn. Grettir: Mýktist ekki nokkuð skaji Gláms, þá er hann var mettur orðinn eða hversu fór að skiln- aði með ykkur? Þórhallur: Næsta fátt varð urn kveðjur. Var Glámur gustilfur mjög, er hann snaraðist út. Var þá dimmt orðið, gnýr í lofti og fjúk nokkurt, og versnaði þó enn, er á kvöldið leið. Grettir: Það hefði mátt ætla, að Glárnur hefði ekki uppnæmur orðið, þótt þústaði að um veður eða hvað er næst frá tíðindum að segja? Þórhallur: Ekki kom Glámur heim síðan. Þó heyrðist til hans önd- verðan dag, er hann hóaði sam- an fénu. Var hann og svo hljóð- mikill og dimmraddaður, að af bar. En er lengra leið fram, heyrðist miður til hans eða alls ekki. Jökull: Hvort var þá eigi, er fram leið á kvöldið, það ráð ujdjs tek- ið að kanna, hvað dveldi fyrir heimkomu sauðamanns? Þórhallur: Þegar leið að dagsetri og myrkt var orðið, var hríð mikil og þótti því ekki fært að hefja leitina. Jökuíl: Allilla var það, að eiga bæði fé og sauðamann úti um jólanótt í slíku veðri og líklegt til stórra tíðinda. Þórhallur: Er birti á jóladag hófu menn leitina, fundu þeir féð víða í fönn eða lamið af ofviðr- inu, en sumt hrakið á lieiðar ujrjj. Þeir komu og á traðk nokk- urn, sem glímt hefði verið held- ur sterklega. Var grjót víða upp fært og svo jörðin. Lá Glámur þar dauður. Var hann þá blár sem hel og digur sem naut. Bauð af honum óþekkt mikla og hraus mönnum hugur við. Grettir: Ekki verður það talið karlmannlegt, að vera svo lík- lnæddur, sem hér er lýst. En hversu hyggja menn, að þessir atburðir hafi til borið? Þórhallur: Þeir kváðust rakið hafa sjror svo stór sem keraldsbotn- um hefði verið niður skellt, það- an frá, er traðkurinn var, ujrp undir björg þau, er efst eru í dalnum, og ætla því að mein- vættur nokkur hafi unnið á Glámi. Jökull: Það ætla eg trúlegra, að hér hafi hvítabjörn nokkur átt hlut að. Eru ísar miklir fyrir landi og dýr víða upphlaupin. Miklast hræddum mönnum margt í augum. Grettir: Hvort er það rétt, að hús- karla þína brysti dug til að færa Glám til kirkju, svo sem nú tíðk- ast um aðra menn? Þórhallur: Allmjög var til þess reynt og eykjum fyrir beitt og gátu þeir þó ekki fært hann, er eigi var forbrekkis. Varð þeim

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.