Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1968, Page 17

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1968, Page 17
úr 17 millj. tonnum árið 1948 i 45 millj. tonn 1966. Þrátt fyrir þessa aukningu hefur fjárfestingin í fiskiflotum lieims verið mörgum sinnurn meiri að tiltölu. Það við- horf hefur því skapazt, að kostnaðurinn við að veiða ákveðnar fiskitegundir á tilteknu svæði getur verið svo mikill, að útgerðin ber sig ekki. Spurningin er því í dag þessi: Hvernig er unnt að koma við mestri framleiðni i nýtingu fiskistofnanna? Og þar á ekki siður við, að oft getur verið skynsamlegt að takmarka aflamagnið til þess að hindra það, að markaðurinn spillist og verðið hrið- lækki. Þessi atriði öll, ekki siður en nauðsynin á fiski- vernd, hafa valdið þvi, að i dag er mun betri jarðvegur fyrir stofnun skipulegs stjórnkerfis í fiskveiðum á úthöf- unum en var fyrir 10—20 árum. Að svo miklu leyti sem slíkt stjómkerfi myndi taka tillit til þarfa þeirra þjóða, sem efnahag sinn byggja á fiskveiðum, væri það okkur i hag. Og væri þá ekki úr vegi að gera stuttlega grein fyrir þeim helztu leiðum, sem hér sýnist um að ræða varð- andi framtiðarskipulag fiskveiða á úthöfunum. Ný lög-saga eða alþjóðastjóm. Fyrsta leiðin er sú, að áfram verði haldið á grundvelli ríkjandi þjóðaréttar i þessum efnum. Enn yrði þess þá freistað að leysa vanda hinna alþjóðlegu fiskveiða og fiskivemdar á úthafinu með tvíhliða og marghliða samn- ingum þjóða í milli á grundvelli reglunnar um frelsi hafs- ins. Lögsaga yfir fiskveiðum var bundin við mörk fisk- veiðilandhelginnar. Það þýddi i raun aðeins 12 mílur, þar sem víðáttumeiri fiskveiðilandhelgi, svo sem ýmis S,- Amerikuríki halda fram, nýtur ekki þjóðréttarlegrar viðurkenningar. A galla hins frjálsa samningakerfis i þessum efnum hefur þegar verið bent. Og hætt er við, að svo langan tíma taki að fá meirihluta þjóða til að sam- þykkja stærri fiskveiðilögsögu að útfærsla hennar sé ekki raunhæft úrræði til lausnar á vandkvæðum fiskveiði- þjóða í þessum efnum. Timarit lögfræðinga 15

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.