Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1968, Page 26

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1968, Page 26
meta, hver tengsl séu milli sálrænnar vanheilsu og refsi- verðs verknaðar, þ. e. hvort sökunautur hafi verið alls ófær um að stjórna gei'ðum sínum. Er þetta ýnxist kall- aður lögfræðilegur eða sálfneðilegur mælikvarði. Er stuðzt við svipaðan mælikvarða í flestum grannlöndum okkar, Danmörku (,,utilregnelig“), Svíþjóð („under inflytande av sinnessjukdom, sinnesslöhet eller annan sjálslig abnormitet av sa djupgáende natur, att den máste anses jámstálld med sinnessjukdom . . .“), Englandi (og Bandarikjunum að meginstefnu), en þar gilda enn hinar svonefndu M’ Naghten-reglur fi'á 1843. Kjarni þeirra felst i eftirfarandi leiðbeiningum lávarðadeildarinnar ensku (the right and wrong test): „.. . to eslablish a defence on the ground of insanity it must be clearly proved that, at the time of committing the act the accused was laboui’ing under such a defect of reason, from disease of the mind, as not to know the nature and quality of the act he was doing, or, if he did know it, that he did not know he was doing what was wi'ong.“ Hins vegar gildir í Noregi líffræðilegur (læknisfræði- legur) mælikvarði. 1 44. gr. noi'sku hegningarlaganna frá 1902, shr. lög nr. 22/1929 um breytingu á 44. gr., segir svo: „En handling er ikke straffbar, nár gjei-nings- mannen ved dens foretagelse var sinnsyk eller bevisstlos11. Hér þarf hvoi'ki geðlæknir né dómari að huga að tengsl- um milli vanheilsu og verknaðar. Geðlæknir staðreynir heilhrigðisástandið. Komist hann að þeirin niðux'stöðu, að um geðveiki eða rænuleysi sé að ræða, getur dómari gengið ut frá því, að sökunautur sé ósakhæfur. 1 44. gr. norsku hegningarlaganna er ekki rninnzt á andlegan vanþroska, en geðveikishugtak greinarinnar hefur ætíð verið skilið svo, að það tæki einnig til vanþroska á háu stigi. 1 teoríu er litið svo á, að álit geðlækna sé aðeins til leiðbeiningar, eins og almennt er um álit sérfróðra mats- og skoðunar- manna. 1 framkvæmd er dómari þó bundinn af niðurstöðu lækna, a. m. k. ef enginn vafi kemur fram í forsendum 24 Tímarit lögfræðinga

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.