Tímarit lögfræðinga - 01.06.1968, Qupperneq 62
Frá bæjarþing.i Reykjavíkur.
Nokkrir dómar frá árunum
1965 og 1968
Hér er um að ræða framhald af safni dóma bæjar-
þings Reykjavíkur, sem birtist í síðasta hefti.
Val dómanna hafa sömu menn annazt þeir fulltrúar
yfirborgardómai’a Bjöx-n Þ. Guðmundsson og Stefán M.
Stefánsson.
Kaup — riftun — ólög-mæt sjálftaka.
1 bæjarþingsmáli nokkru, var sakarefni það, að A. og
B. höfðuðu mál gegn þeim C., D. og E. og kröfðust þess,
að stefndu yrðu in solidum dæmdir til að greiða kr.
36.649,30 með 7% ársvöxtum frá 20. ágúst 1967 til
greiðsludags og málskostnað. 1 stefnunni var málavöxtum
lýst á þá leið, að með afsali dagsettu 21. júlí 1962 hefðu
þeir stefnendur A. og B. keypt vélbátinn Svöluna, talin
2,670 tonn, af stefnda C. Þegar C. hafi selt bátinn hafi
hann sýnt afsal að bátnum sér til handa, útgefið þann 5.
apríl 1962, af stefndu D. og E. Þá er því lýst í stefnunni,
að þegar stefnandinn A. hafi ætlað að ganga að bátnum
vísum við Faxabryggju í Reykjavíkurhöfn, þann 20. ágúst
1962, hafi báturinn verið horfinn. Við rannsókn málsins
hafi komið í ljós, að stefndi D. hafi tekið bátiixn að beiðni
stefnda E. og flutt hann til Hafnarfjarðar. Vnxislegt laus-
legt hafi verið horfið úr bátnunx, eix einnig hafi hann
laskast í flutningi þessum. Stefnendur hafi reynt með
beinni innsetningargerð að fá umráð bátsins í sínar hend-
ur, en sú gerð hafi ekki náð fram að ganga.
Sanxkvænit skx’rslum D. og E. og eins vitnis í málinu
122
Tímarit lögfræðinga