Tímarit lögfræðinga - 01.06.1968, Síða 63
voru málavextir að öðru leyti þeir, að þeir D. og E. höfðu
áður átt bátinn. 1 aprilmánuði 1962 hafi svo komizt á
samband við stefnda C., sem hafi haft hug á að kaupa
bátinn. Kaupverðið hafi átt að vera kr. 45.000,00. Samizt
hafi svo um, að C. skyldi greiða kaupverðið þannig, að
kr. 25.000,00 skyldu greiðast hinn 1. júlí 1962, en afgang-
inn hafi átt að greiða með kr. 2.000,00 mánaðarlega. Til
tryggingar greiðslunum hafi C. lofað að gefa út veðskulda-
bréf að fjárhæð kr. 45.000,00 með veði í tiltekinni fast-
eign. Þegar stefndu C., D. og E. hafi verið mættir á skrif-
stofu skipasalans til að ganga frá kaupunum, hafi komið
í ljós, að skipasalinn hafi sett það álcvæði í afsalið, að
kaupandinn skyldi gefa út víxil til tryggingar 25.000,00
króna geriðslunni og veðskuldabréf til trvggingar afgangi
kaupverðsins, kr. 20.000,00. Þeir D. og E. kveðast hafa
tekið eftir þessu, þegar búið hafi verið að undirrita af-
salið, og hafi þeir þá strax bent á, að þetta væri ekki í
samræmi við það, sem um hafi verið talað, þ. e. að veð-
skuldabréfið skyldi gefið út fyrir allri fjárhæðinni kr.
45.000,00. Hafi því verið ákveðið með samþykki allra
viðstaddra að breyta þessu og hafi þá þegar verið ákveð-
inn tími til þess að útbúa nýtt afsal og veðskuldabréf.
Þeir stefndu D. og E. hafi síðan mætt á skrifstofu
skipasalans á ný til að undirrita hin nýju skjöl, en þá
hafi C. ekki mætt. Tilraunir til að fá C. til að mæta síðar
hafi ekki borið árangur.
Einnig hafi síðar komið í ljós, að stefndi C. hafi tekið
afsalið á bátnum ófrjálsri hendi á skrifstofu skipasalans.
Þeir D. og E. kváðust hafa afhent stefnda C. bátinn
síðustu dagana í aprílmánuði 1962, áður en þeir undir-
rituðu samningana, og hafi C. farið með bátinn til Reykja-
víkur. Þeir D. og E. kveðast nú hafa áltveðið að fylgjast
með bátnum, þar sem hann lá í Reykjavíkurhöfn, og hafi
þeir ákveðið að bíða átektar til 1. júlí 1962 og sjá til,
hvort stefndi C. greiddi fyrstu afborgunina. Hafi þeir
síðan farið til C., tveim til þrem dögum eftir gjalddaga,
Tímarit lögfræðinga
123