Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Blaðsíða 11

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Blaðsíða 11
inga (1988) var gerð grein fyrir meginsjónarmiðum um áhrif þjóðréttarsamn- inga á íslenska réttarskipan, m.a. þeirri grundvallarreglu að þjóðréttarsamn- ingar fái ekki sjálfkrafa lagagildi og dómstólum, stjórnvöldum og þegnum landsins beri að fara eftir landslögum þangað til að þeim hefur verið breytt.4 Þetta voru og eru grundvallarsjónarmið um samband þjóðaréttar og landsréttar í réttarkerfi sem byggir á tvíeðli réttarins; aðgreiningu landsréttar og þjóða- réttar. A síðustu áratugum hefur beiting þessa grundvallarsjónarmiðs orðið erfiðari, einkum að því er varðar ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu, og kemur þar m.a. til uppbygging kerfis þess sem sett er á stofn með mann- réttindasáttmálanum og eftirlitsvald sem fer út fyrir hefðbundna skipan í þjóðarétti, sbr. umfjöllun í kafla 3 hér á eftir. A árinu 1988 var íslensk réttarframkvæmd í fullu samræmi við þessi viður- kenndu sjónarmið um samband landsréttar og þjóðaréttar. I málum þar sem einstaklingar héldu því fram að brotið væri gegn ákvæðum mannréttinda- sáttmálans vísuðu dómstólar til þess að sáttmálinn hefði ekki öðlast lagagildi hér á landi og breytti því ekki íslenskri réttarskipan, sbr. t.d. Hrd. 1975 601, um hundahald í Reykjavík5 og Hrd. 1985 1290 og Hrd. 1987 356 um þá að- stöðu að fulltrúi sýslumanns fór einnig með dómstörf í héraði utan Reykja- víkur. Er sambærilegt álitaefni kom til kasta Hæstaréttar á árinu 1989, eftir að niðurstaða Mannréttindanefndar Evrópu lá fyrir í máli Jóns Kristinssonar (Hrd. 1985 1290), um að brotið hefði verið gegn 1. mgr. 6. gr. mannrétt- indasáttmálans, varð niðurstaða Hæstaréttar sú að fulltrúa sýslumanns hefði borið að víkja sæti við dómsmeðferð sakamáls, sbr. Hrd. 1990 2.6 Dómur þessi er ótvírætt stefnumarkandi um áhrif mannréttindasáttmálans á íslenskan landsrétt - og beitingu ákvæða hans í landsrétti. I kjölfar þessa dóms gengu dómar í sambærilegum málum, þar sem vísað var til Hrd. 1990 2 og þeirra sjónarmiða sem þar koma fram. Þá reyndi á 6. gr. mannréttindasáttmálans í Hrd. 1990 92, þar sem talið var að dómari hefði átt að víkja sæti við meðferð sakamáls, er hann hafði áður úrskurðað sakborning í gæsluvarðhald í samræmi við ákvæði laga nr. 74/1974. I dómi Hæstaréttar er vísað til þess að skýra verði ákvæði laga með hliðsjón af ákvæðum mannréttindasáttmálans, og vísað 4 Stefán Már Stefánsson: „Um þörf á lögfestingu þjóðréttarsamninga“. Birt sem fylgiskjal með skýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 1988. Reykjavík 1989, bls. 4. 5 í dómi Hæstaréttar er þó einnig tekið fram að ákvæði laga og reglugerða um takmörkun hundahalds í þéttbýli fari ekki í bága við 8. gr. mannréttindasáttmálans, enda hefur Mannrétt- indanefnd Evrópu vísað því á bug að slfkt bann fari gegn vernd þeirri sem 8. gr. mannréttinda- sáttmálans tryggir. 6 Sátt var gerð milli íslenska ríkisins og Jóns Kristinssonar og málið eftir það tekið af dagskrá mannréttindadómstólsins. Við þá ákvörðun var, auk sáttarinnar, litið til breytinga á íslenskri löggjöf og breytingar á réttarframkvæmd og m.a. vísað til dóms Hæstaréttar í H 1990 2, sjá mál Jóns Kristinssonar gegn Islandi (dómur 1. mars 1990), Series A vol. 171-B, einkum fors. 18. 159
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.