Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Blaðsíða 60
Að lokum sagði formaðurinn að tækist lögmönnum að halda áfram á þeirri
braut, sem félagið hefði markað og tækist að sýna að þeir standi saman sem
ein heild, þá væri hann ekki í vafa um að staðan myndi batna enn og væri
það öllum í hag, ekki síst réttarþróuninni og réttarörygginu í landinu. Að lok-
um þakkaði formaðurinn áheymina og lauk máli sínu.
Þórunn Guðmundsdóttir hrl. formaður kjaranefndar, gerði grein fyrir störfum
nefndarinnar, en á starfsárinu hélt hún 5 fundi. Helsta verkefni nefndarinnar
var að fara yfir framkomnar tillögur að nýrri gjaldskrá félagsins, sem gerðar
voru í kjölfar gildistöku nýju samkeppnislaganna. Einnig hefði verið til um-
ræðu innan nefndarinnar á hvern hátt félagið gæti liðsinnt félagsmönnum við
hagstæð kaup á ýmsum rekstrarvörum og skrifstofubúnaði, kaup á vátrygg-
ingum o.fl. Formaður kjaranefndar sagðist ætla að hætta störfum nú og þakk-
aði meðnefndarmönnum sínum samstarfið.
Magnús Thoroddsen hrl. formaður laganefndar, flutti skýrslu nefndarinnar.
Sagði hann að nefndin hefði haft ærinn starfa á starfsárinu. Hefði hún fengið
30 lagafrumvörp og þingsályktunartillögur og drög að frumvörpum til um-
sagnar. Meðal frumvarpa, sem laganefndin hefði fjallað um, væru frumvarp
til laga um samningsveð, frumvarp til laga um fjöleignarhús, frumvarp til laga
um Mannréttindasáttmála Evrópu, frumvarp til laga um viðamiklar breytingar
á hlutafélagalögunum, frumvarp til laga um umboðsmann barna og breytingar-
tillögur á einkamálalögunum, lögunum um meðferð opinberra mála og lögum
um Hæstarétt íslands.
Viðar Már Matthíasson hrl. tók því næst til máls og gerði grein fyrir störfum
bókasafnsnefndar. Vísaði hann til skriflegrar skýrslu nefndarinnar, sem lögð
hafði verið fyrir aðalfundinn. Stefna nefndarinnar í bókakaupum hefði verið
að leitast við að kaupa nýjar og nýlegar íslenskar og norrænar lögfræðibækur
á sem flestum sviðum réttarins. Einnig hefði verið leitast við að kaupa aðrar
erlendar bækur, ef þær hefðu sérstaka þýðingu. Akvarðanir um bókakaup
hefðu almennt verið teknar af nefndarmönnum, en aðstoðar hafi verið leitað
hjá Magnúsi Kjartani Hannessyni lektor um rit varðandi flutninga- og versl-
unarrétt. Keyptar hefðu verið 140 bækur á árinu, en nú væru um 1.073 bóka-
titlar skráðir í eigu safnsins. Fram kom að rekstur bókasafnsnefndar árið 1993
hefði kostað 98.750 krónur, en lang stærsti hluti þeirrar fjárhæðar hefði farið
til útgáfu bókaskrár, sem kom út í maí 1993. Skráin hefði verið send öllum
félagsmönnum og auðveldaði hún lögmönnum og fulltrúum þeirra notkun
safnsins. Formaður bókasafnsnefndar benti á að upphafleg fjárveiting til
safnsins væri uppurin og hefði nefndin því lagt fram fjárhagsáætlun vegna
ársins 1994, þar sem meðal annars væri gert ráð fyrir kaupum á bókum og
öðru efni fyrir 900.000 krónur, bókbandi fyrir 300.000 krónur og öðrum kostn-
aði fyrir 570.000 krónur. Formaður bókasafnsnefndarinnar óskaði eftir um-
tjöllun fundarmanna um mál þetta, svo að hægt væri að taka mið af vilja
þeirra við endanlega ákvörðun. Þá var greint frá því að keypt yrði geisladisk-
drif fyrir tölvu bókasafnsins svo að hægt væri að lesa af geisladiskum, en æ
208