Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Blaðsíða 30

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Blaðsíða 30
Jafnvel hafa gögn um skýran vilja samningsaðila orðið að víkja fyrir öðrum sjónarmiðum um túlkun, svo sem skýrt kom fram í dómi mannréttindadóm- stólsins í máli Young, James og Webster gegn Bretlandi47 og nú síðast í dómi mannréttindadómstólsins í máli Sigurðar A. Sigurjónssonar gegn Is- landi (sjá 4.2.5). 4.2.3 Samræmisskýring (systemic interpretation) í 31. gr. Vínarsáttmálans er samræmisskýring nefnd og er það lögskýr- ingarsjónarmið mjög mikilvægt í beitingu mannréttindadómstólsins á ákvæð- um sáttmálans. Er þar átt við að ákvæði sáttmálans séu skýrð til samræmis við önnur ákvæði hans og við sáttmálann í heild. Það er misjafnt hve víðtæk samræmisskýringin er, þ.e. hvort samræmis sé gætt við beitingu tiltekinnar greinar við aðrar greinar sama ákvæðis, við önnur ákvæði sáttmálans eða við- auka við hann, eða jafnvel við aðra alþjóðlega sáttmála eða lagatexta.48 Það má segja að við afmörkun á því sviði, þar sem samræmisskýring á við, sé til mótvægis hægt að líta til sjálfstæðrar skýringar (e. autonomous interpret- ation) sem byggir á ákvæðum sáttmálans, skýrðum út frá hugmyndum og uppbyggingu mannréttindasáttmálans sjálfs, án þess að vísað sé út fyrir sátt- málann. Þessi sjónarmið útiloka því að nokkru leyti hvort annað. Sjá nánar um sjálfstæða skýringu stofnana Evrópuráðsins í kafla 4.3.1. 4.2.4 Tilgangsskýring (teleological interpretation) Auk samræmisskýringar er tilgangsskýring (e. teleological interpretation) eitt mikilvægasta lögskýringarsjónarmiðið sem mannréttindadómstóllinn beitir og er í raun kjarninn í túlkunarstarfi dómstólsins. 1 tilgangsskýringu felst að ákvæði sáttmálans eru skýrð á þann veg að tilgangur þeirra náist og verður þá jafnframt að ákvarða það markmið sem stefnt er að, t.d. hvort stefnt er að því að ná því markmiði, sem aðildarríki að sáttmálanum settu sér við samn- ingsgerð, eða hvort miðað er að sem víðtækastri vernd einstaklingsréttinda. Tilgangsskýring tekur mið af tilgangi einstakra ákvæða, svo og ákvæða sátt- rnálans í heild. Til að gera fullnægjandi grein fyrir þessu skýringarsjónarmiði dómstólsins yrði að rekja dómaframkvæmd ítarlegar en hér er kostur. Hins vegar má benda á viðmið dómstólsins um hvernig markmið eða tilgangur sáttmálans eru ákvörðuð, og eru það einkum þrjú viðmið sem ráða niður- stöðu:49 47 Mál Young, James og Webster (dómur 25. nóvember 1980) Series A vol. 44. 48 Sjá hér m.a. dóm mannréttindadómstólsins í máli Sigurðar Á. Sigurjónssonar, Series A vol. 264, fors. 35. 49 Francois Ost: „The Original Canons of Interpretation...", bls. 294-302. 178
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.