Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Blaðsíða 44

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Blaðsíða 44
Með siðakröfum á ég við þá víðtæku merkingu hugtaksins sem hefur að geyma allar kröfur sem rekja má til siðamats eða siðfræði. Það má orða þannig að miðað sé við þær vísireglur sem byggjast á góðu/vondu eða eftir því sem við á sæmandi/ósæmandi og það mat sé byggt á viðurkenningu á nokkrum gildum sem hafa sérstaka þýðingu eftir því sem við á og er almennt viður- kennt. Alþjóðlegar siðakröfur eru kröfur sem gert er ráð fyrir að séu virtar óháð landamærum. Það er ekki óþekkt fyrirbrigði í umræðum þeirra sem vinna innan refsi- vörslunnar, að það viðhorf skjóti upp kollinum að vandlifað sé nú á tímum þegar ætlast er til þess að í störfum sé tekið tillit til „óviðráðanlegs“ fjölda af skráðum og óskráðum siðareglum. Ég er ekki viss um að allir geri sér grein fyrir því að margar af þessum reglum eiga rætur sínar að rekja til alþjóðlegra stofnana eða eru mótaðar á alþjóðlegum fundum eða ráðstefnum. Hér á landi, sem og víðar, eru það ekki óþekkt viðbrögð að óskýr og fjarlægur uppruni siðareglnanna hafi þau áhrif að menn telja þessar reglur óþarfar í daglegum störfum sínum þar sem þær taki ekki tillit til hinna sérstöku aðstæðna sem ríkja hér á landi og viðkomandi þekkja betur en allir aðrir. A undanförnum árum og áratugum hefur á alþjóðlegum vettvangi verið vax- andi umræða um mannréttindi og vernd þeirra. Auknar kröfur eru gerðar til einstakra ríkja um að virða grundvallarreglur um réttindi borgaranna. Bindandi þjóðréttarsamningum á sviði mannréttinda fer fjölgandi sem og alþjóðlegum ályktunum um siðrænar kröfur varðandi störf þeirra starfsstétta sem vinna með þá einstaklinga sem sæta frjálsræðissviptingu sem og ályktunum um meðferð slíkra einstaklinga. Hér verða ekki taldir upp allir þeir samningar eða ályktanir sem við er átt, en nokkur dæmi nefnd. Af bindandi samningum má nefna Evrópuráðssamning um verndun mannréttinda og mannfrelsis, alþjóðasamning um borgaraleg og stjómmálaleg réttindi, alþjóðasamning um vamir gegn pyndingum o.fl. og samning um réttindi barna. Sem dæmi um ályktanir má nefna evrópskar fang- elsisreglur, ályktun Evrópuráðsins um gæsluvarðhaldsfanga, ályktun Evrópu- ráðsins um stöðu, endurhæfingu og þjálfun starfsmanna í fangelsum, reglur Sameinuðu þjóðanna um vemd ungmenna sem svipt eru frjálsræði og svona mætti lengi telja. Þessar ályktanir eru ekki þjóðréttarlega bindandi, en í þeim felast tilmæli til einstakra ríkisstjórna um að efnisreglur þeirra verði teknar upp í lög, reglur og önnur starfsfyrirmæli. I umræðum á alþjóðlegum vettvangi undanfarin ár hefur m.a. verið í auknum mæli fjallað um með hvaða hætti unnt er að tryggja að grundvallarmannrétt- indi og siðareglur séu virtar í einstökum ríkjum og með hvaða hætti sé hægt að þrýsta á ríki að breyta lögum og framkvæmd í þeim tilvikum að ekki er talið að þau framfylgi viðurkenndum grundvallarreglum. í þeim tilgangi að fylgja því eftir að ríki heims framfylgi alþjóðlegum skyldum á þessu sviði hafa verið sett upp nokkur alþjóðleg eftirlitskerfi sem þó hafa mismunandi tilgang og þýðingu. Má þar til nefna skýrslugjöf til og yfirheyrslu fulltrúa 192
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.