Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Blaðsíða 61
fleiri rit og söfn rita, t.d. Ugeskrift for Retsvæsen, væru nú einnig gefin út á
slíkum diskum. Formaður bókasafnsnefndar þakkaði síðan fyrir þær bókagjafir
sem safninu hafa borist á árinu og sérstaklega höfðinglega gjöf Braga
Björnssonar hdl., sem gaf safninu Nordisk Domssamling frá upphafi til þessa
dags. Jafnframt var nefnt að aðsókn að safninu hafi aukist verulega. Þannig
hafi á árinu 1993 verið skráðir í gestabók safnsins 330 gestir, en 1992 255
gestir. Að lokum óskaði formaður bókasafnsnefndar eftir ábendingum frá
félagsmönnum um bókakaup eða um annað sem betur mætti fara.
Næst á dagskrá aðalfundarins voru endurskoðaðir ársreikningar fyrir liðið
reikningsár. Framkvæmdastjóri félagsins gerði grein fyrir ársreikningunum, en
þeir voru sendir út til félagsmanna með ársskýrslu stjómarinnar. Framkvæmda-
stjórinn gerði grein fyrir helstu tekjustofnum félagsins, sem eru álögð
félagsgjöld og málagjöldin. Fram kom að nettótekjur væru mjög svipaðar og
næstu 2 árin á undan, en félagsgjaldið, 22.000 krónur á hvern félagsmann,
hefði verið óbreytt frá árinu 1991 og ekki væru áætlaðar breytingar á þessu
ári. Innheimta félagsgjaldanna hafi gengið ágætlega en útistandandi félags-
gjöld væru lítillega hærri en á sama tíma í fyrra. Framkvæmdastjórinn gerði
grein fyrir minnkandi tekjum félagsins vegna málagjalda. Skýringin væri
veruleg fækkun þingfestra mála fyrir héraðsdómum landsins. Þá nefndi hann
að hækkun á rekstrarkostnaði skrifstofu félagsins um tæplega 400.000 krónur
milli ára væri aðallega tilkomin vegna kostnaðar við lögmannaherbergið í
Dómhúsinu við Lækjartorg og vegna kaupa á skikkjum á liðnu reikningsári.
Væru þessir liðir ekki teknir með hefði rekstrarkostnaður skrifstofunnar í raun
lækkað. Þá hafí gerð sjónvarpsþátta um lögfræðileg málefni verið gjaldfærð
á árinu 1993. Þá var gerð grein fyrir væntanlegum viðhalds- og viðgerðar-
kostnaði á yfirstandandi reikningsári, en til stendur meðal annars að klæða
húsið að Álftamýri 9 að utan.
í umfjöllun um efnahagsreikning kom fram að veltufé hefði lækkað um
rúmlega 1.700.000 krónur og væri skýringin meðal annars bókakaup á árinu,
en þó aðallega vegna greiðslna úr Ábyrgðarsjóði L.M.F.Í. Bankainnistæður
hefðu lækkað úr 19.800.000 krónum í 8.800.000 krónur, en á árinu hafi orðið
laus inneign á bakhjarlsreikningi sem varið var til kaupa á verðbréfum, en
liðurinn verðbréf hækkaði úr 20.000.000 króna í 34.700.000 krónur. Um tekjur
Námssjóðs L.M.F.f. sagði framkvæmdastjórinn að bókasala hefði minnkað á
milli áranna 1992 og 1993, en skýringin á því væri aðallega sú að á árinu
1992 hafi Erfðaréttur eftir Ármann Snævarr verið seldur og auk þess hafi
verið mikil sala á bókum á réttarfarsnámskeiðum, sem félagið hélt á því ári.
Meginverkefni sjóðsins á yfírstandandi ári væri útgáfa á lögfræðiriti um fulln-
ustugerðir eftir Markús Sigurbjörnsson lagaprófessor. í umfjöllun um stöðu
Ábyrgðarsjóðs L.M.F.Í. sagði framkvæmdastjórinn meðal annars að greiðslum
hefði verið haldið áfram í upphafi ársins 1993 til fyrrum skjólstæðinga tveggja
lögmanna, sem orðið höfðu gjaldþrota. Þá kom fram að á síðasta ári hafi
fimm lögmenn verið úrskurðaðir gjaldþrota. Búskiptum væri lokið hjá tveimur
209