Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Side 12

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Side 12
til niðurstöðu mannréttindadómstólsins í máli Hauschildt gegn Danmörku7 í Hrd. 1993 355 var málsmeðferð héraðsdómara ómerkt og málinu vísað til héraðsdóms að nýju, þar sem dómari málsins þótti hafa tekið afstöðu til málsins á fyrri stigum þess, er hann bauð ákærða að ljúka málinu með sátt samkvæmt 112. gr. laga nr. 74/1974. Hann var því ekki talinn geta farið með málið sem dómari og um vanhæfí hans vísað til 7. tl. 36. gr. laga nr. 85/1936 um meðferð einkamála, sbr. 2. mgr. 15. gr. laga nr. 74/1974, eins og ákvæðin yrðu skýrð með hliðsjón af 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmálans. I Hrd. 1992 174 voru ákvæði 1. mgr. 40. gr. laga nr. 85/1936 um meðferð einkamála í héraði og 2. mgr. 19. gr. laga nr. 74/1974 um meðferð opinberra mála skýrð með hliðsjón af e-lið 3. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmálans, um rétt sakaðs manns til að fá ókeypis aðstoð túlks, ef hann skilur ekki eða talar mál það sem notað er við meðferð málsins. í dómi Hæstaréttar var ákveðið að kostn- aður vegna dómtúlks skyldi greiddur úr ríkissjóði. I Hrd. 1993 147 var bein- línis vísað til 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmálans, en dráttur á rekstri máls hjá embætti ríkissaksóknara var talinn brjóta í bága við 1. mgr. 138. gr. laga nr. 74/1974 um meðferð opinberra mála, sbr. 1. mgr. 133. gr. laga nr. 19/1991, „og er í andstöðu við ákvæði 1. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu ...“. Hafði þetta, auk annarra atriða, sakarferils ákærða og persónulegra haga hans, þau áhrif að fullnustu refsingar var frestað skilorðsbundið. Á árinu 1990 birtist grein eftir Ragnar Aðalsteinsson, hæstaréttarlögmann, undir heitinu „Alþjóðlegir mannréttindasáttmálar og íslenskur landsréttur“. Ut 7 Mál Hauschildt gegn Danmörku (dómur 24. maí 1989) Series A vol. 154. í máli því sem dæmt var í Hrd. 1990 92 vék sakadómari sæti vegna afskipta sinna af málinu á rannsóknarstigi, en þá kvað hann m.a. upp þrjá gæsluvarðhaldsúrskurði á grundvelli 4. tl. 1. mgr. 67. gr. laga nr. 74/1974. Taldi sakadómarinn það ekki í samræmi við 1. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, eins og hún hefði verið skýrð af Mannréttindadómstóli Evrópu, að hann tæki þátt í dóntsmeðferð ntálsins. Staðfesti Hæstiréttur það mat sakadómarans. í dómi Hæstaréttar er vísað til fullgildingar íslands á Mannréttindasáttmála Evrópu og segir m.a. svo í dóminum: „Af um- ræðum sem urðu, þá er sáttmáli þessi var til meðferðar á Alþingi, verður ráðið að talið var, þegar hann var fullgiltur, að fslenskar réttarreglur væru í samræmi við hann eins og sáttmálinn þá var skýrður. Eftir þetta hafa mörg ákvæði hans verið skýrð við meðferð kærumála hjá Mann- réttindanefnd og Mannréttindadómstóli Evrópu. Með fuilgildingunni gekkst ísland að þjóðarétti undir að hlíta ákvæðum sáttmálans. í dómi Mannréttindadómstóls Evrópu 24. maí 1989 í svo- kölluðu Hauschildt-máli, sem reis milli dansks ríkisborgara og ríkisstjórnar Danmerkur, hefur dómstóllinn skýrt nánar hvað felist í orðum 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmálans um óhlut- drægan dómstól. Meirihluti dómsins kemst þar að þeirri niðurstöðu að það sé brot gegn þessu ákvæði að dómarar, sem nokkrunt sinnum hafa úrskurðað sakborning í gæsluvarðhald á grund- velli sérstaks ákvæðis í dönskum réttarfarslögum, taki þetta sama mál til efnismeðferðar. Ákvæði danskra réttarfarslaga, sem hér um ræðir, gerir ráð fyrir því að setja megi mann í gæsluvarðhald ef sérstök ástæða er til að ætla, að hann haft framið tiltekin brot. Meirihluti Mannréttinda- dómstóis Evrópu var þeirrar skoðunar, að samkvæmt atvikum þessa danska máls yrði hlutleysi dönsku dómstólanna hugsanlega dregið í efa og að ótti kæranda þar að lútandi væri þvf studdur hlutlægum rökum“. 160

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.